Faxi

Árgangur

Faxi - 01.02.1993, Blaðsíða 25

Faxi - 01.02.1993, Blaðsíða 25
STAFNES CÖMUL SÖCN UM „Þú skaU Stafur heita og nesiÖ Stafnesu Mælt er, að til forna hafi verið 24 hjáleigur og tómthús á Stafnesstorf- unni. Taldi Jón Jónsson hreppstjóri frá Fuglavík, sem síðast bjó í Glaum- bæ við Stafnes, mjög glöggur maður og fróður um margt, upp 14 af hjá- leigum þessurn, sem nú hafa verið fjölda mörg ár í eyði, og voru þær þessar: Nes, Hólmi (tvíbýli), Sand- liús, Garðar, Rif, Refshalakot, Gosa, Hattakollur, Sveinshöfði, Vallarhús, Halakot, Lodda og Þemba. Kvaðst hann á yngri árum sínum hafa heyrl lleiri bæjamöfn nefnd, en ekki rnuna þau. Sum af býlunr þess- um voru með vissu grasbýli frá Staf- nesi, en þó flest þurrabúðir. Fisk- veiðar munu óvíða hafa verið stund- aðar með meiri dugnaði og betri hagnaði en frá Stafnesi, enda er þaðan örskammt að sækja á fiski- miðin. Fiskur var þá almennt hertur eða þá kasaður, svo sem skata og hákarl. Var fiskurinn hertur í grjót- byrgjum, sem byggð voru hingað og þangað upp um hraun, og sést þeirra víða merki enn í dag. A Stafnesi eru nú þessi býli: Stafnes, Glaumbær, Nýlenda, Bali, Litlibær, Hólakot og Grund, og eru hér talin 21 alls, ef byggð hinna síðarnefndu býla er svo gömul sem hinna. Er þá ekki nema þremur fátt í þá tölu, sem hin forna sögusögn greinir, Svo er sagt, að endur fyrir löngu hét Stafnes ekki því nafni, heldur aðeins Nes. En sú saga er til þess, að nafnið breyttist, er hér fer á eftir, og er hún skráð eftir því, sem sagði Jón fyrrum hreppstjóri í Fuglavík árið 1888, og var hann þá unt áttrætt. I fyrndinni bjó maður nokkur í Nesi, og mun bærinn þá hafa staðið, þar sem nú er kallað Urð, og er þar nú rif, sem kemur aðeins upp með hálfföllnum sjó. Maður þessi var orðinn gamall og blindur, þegar þessi saga gerðist. Hann átti tvo sonu, er stunduðu sjó- mennsku og reru til fiskjar frá Nesi. Einn dag að áliðnum vetri, er þeir voru á sjó að vanda, brimaði snögg- lega svo mikið, að ólendandi var tal- ið. gerðist gamli maðurinn órór, gekk til smíðahúss og tegldi þar staf einn eða kefli, en bað vinnukonur sínar að vera á höttunum og tjá sér, hvers þær yrðu áskynja úrn afdrif skipsins. Um miðjan dag kernur ein þeirna inn til hans og segir, að ekki muni lengur þurfa að bíða þess, að synir hans lendi, því að þær stúlkurnar höfðu horft á þá bræður leggja í sundið, en þá hafði Boðinn komið og fallið á bátinn flatan; hafði honum þá þegar hvolft og hann borist upp á skerið. Gamla manninum sást lílt bregða og svo var að sjá, sent honum kæmi þetta ekki á óvart. Bað hann stúlkuna að koma aftur til smíða- hússins eftir litla stund. og þá tvær saman. Þegar stúlkumar kontu lil karls, hafði hann lokið við að smíða stal'- prik sitt, svo sem honum líkaði. Var stafurinn ekki rnikill, en haglega gerður og með útskurði allmiklum. Stakk hann stafnum niður með vestisboðang sínum og biður stúlk- umar að leiða sig frarn á nesið, þar sem Boðinn falli á land, segir þeim að leiða sig svo nærri sjónum, sem frekast sé fært og láta sig vita nákvæmlega, þegar Boðinn falli hæst á land við fætur sér. Gera þær nú, sem karl leggur fyrir, og þegar Boðinn rís hæst, tvíhendir karl stafinn á loft, keyrir hann í öld- una og mælir: „HéSan í frá skalíu Stafur heita og nesið Stafnes. Aldrci skaltu framar mönnum að tjóni verða, sé rétt sundleið farin, og leiðið mig nú heim“. Það fylgir sögu þessari, að um- mæli karls hafi orðið að áhríns- orðum, því að í manna minnum hafi engir menn frá Stafnesi farist á sund- inu, þó að jafnan hafi þaðan sjór verið sóttur djatflega og stundum brimað snögglega. Á þeim tímum, er konungsút- gerðin stóð í sem mestum blóma, t'órst þó eitt skip þáma með 20 manna áhöfn, en þeir voru komnir langt inn fyrir aðalsundið og boðann Staf. Hafði skipið ekki farið rétta sundleið og steytti á skeri því, sem Brúnkolla heitir, á gjánni rétt framan við aðallendinguna. Kftir liL'imildum frá Villijálini Kr. Hákonarsyni frá Stafnesi. - Kauilskinna FAXI 57

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.