Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1996, Page 14

Faxi - 01.12.1996, Page 14
FAXI JÓLAKLAI) 1996 9 JSemendaheimsóhnir milli Stóru-Vogaskóla oíf /11 Mahan Highschool á Keflavtknrflugvelli Stóru- Vogaskóli AT Mahan Highschool Fyrir nokkrum vikum fóru fram gagnkvæmar heimsóknir milli 9. og 10. bekkjar í Stóru-Vogaskóla í Vatnsleysustrand- arhreppi og jafnaldra þeirra af Keflavíkurflugvelli. Aðdrag- andinn var sá að í haust lögðu nemendumir í Vogaskóla það til við tungumálakennara sinn (undirritaðann) að eitt og annað nýtt yrði gert til að auka fjölbreytni námsins. Meðal þess sem stungið var upp á var að fara í heimsóknir í aðra skóla til að kynnast námi þar. Með hliðsjón af þessu var haft samband við A T Mahan Highschool á Keflavíkurflugvelli og boðið upp á gagnkvæmar heimsóknir. Var því strax vel tekið og var á- kveðið að hinir amerísku gestir kæmu fyrst í heimsókn mið- vikudaginn 6. nóvember. Undirbúningur heimsóknarinnar var að mestu leyti í hönd- um nemendanna sjálfra. Lögð skyldi áhersla á að sem best tækifæri gæfust til að tala við gestina því markmiðið með heimsókninni var fyrst og fremst að æfa sig í að tala ensku. Eftir mikið jaml, japl og fuður lá dagskráin fyrir og leit hún þannig út: Kl. 12:00-13:00 Kl. 13:00-15:00 Kl. 15:00-16:00 Kl. 16:00-17:30 Kl. 17:30-18:30 Kl. 18:30-21:00 Móttaka í skólanum. Hópnum skipt niður í hópa skólinn skoðaður Skoðunarferð um Vogana - fyrirtæki heimsótt Kakó og kökur í skólanum íþróttirog leikir í íþróttamiðstöðinni Pízzuveisla í Glaðheimum Diskótek í Glaðheimum Undirbúningur heimsóknarinnar gekk vel. Kökur voru bak- aðar, nafnspjöld búin til og skoðunarferðir skipulagðar. Talað var við nokkur fyrirtæki og var því vel tekið að taka á móti nemendunum. Þá þurfti líka að skipa öllum í ákveðna hópa og skipta verkum. Að lokum var lítilsháttar tekið til í stofu eitt en þar átti að taka á móti gestunum. Það var ekki laust við að nokkur spenningur væri í loftinu þegar miðvikudagurinn rann upp. 24 Vogabúar biðu spenntir eftir gestum sínum. Tilkynnt hafði verið að líklega yrðu þcir um 16 talsins. Klukkan tólf renndi strætisvagn af ekta Flug- vallargerð upp að skólanum og út stigu: níu stúlkur og einn strákur! Það var ekki laust við að það kæmi dálítið á heima- menn. Það var þó ekki nema í skamma stund því hvað getur verið yndislegra en að fá níu brosmiidar og áhugasamar stúlk- ur í heimsókn, já og einn strák reyndar. Já hann Paul olli ekki neinum vonbrigðum! Skoðunarferðir - leikir - íþróttir og pí/.zur Það er skemmst frá að segja að dagurinn leið hratt og skemmtilega og eins og dagskráin hafði gert ráð fyrir. Farið var með allan mannskapinn í heimsóknir í fiskverkunarhús Valdimars hf. þar sem Magnús Ágústsson leiddi hópana um húsið og útskýrði það sem fyrir augu bar. Var ekki annað að sjá en að gestimir fylgdust með því öllu af mikilli eftirtekt. Fólkið hans Magnúsar var á fullu við að verka saltfisk og síð- an biðu nokkur kör af karfa sent átti að verka síðar um daginn og senda að því búnu án tafar á veisluborð Evrópubúa. Var virkilega gaman að sjá allan þann myndarskap sem ríkir hjá fyrirtækinu. Á milli þess sem gestunum var sýnt það helsta sem byggðin í Vogum hefur upp á að bjóða stungu hópamir sér inn hjá Vogaídýfu. Þar tók Guðmundur Sigurðsson á móti nemend- ununi og kynnti þeim þá merkilegu starfsemi sem þar ler fram. Eins og kunnugt er framleiðir fyrirtækið ýmiskonar í- dýfur og sósur og er framleiðslan í stöðugri framför. Snyrti- mennskan er þar í fyrirrúmi og voru gestimir mjög ánægðir með heimsóknina þangað. Ekki skemmdi það fyrir að ekki Lagt af stað í skoðunarferð um Vogana auðvitað var byrj- að á því að prófa svellið á tjörninni við Stóru-Vogaskóla. 114 FAXI

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.