Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.2000, Blaðsíða 22

Faxi - 01.12.2000, Blaðsíða 22
FAXI 60 ARA í MINNINGU VALTÝS GUðJÓNSSONAR OG JÓNS TÓMASSONAR I. Sagt er að árið 1930 hafi aðeins ver- ið tveir réttlátir framsóknarmenn til í Keflavik. Það voru þeir Arinbjöm Þor- vaiðarson og Jón Gunnarsson Pálsson. Um svipað leyti eða skömmu síðar sett- ist Daníval Danívalsson að í Keflavík og allt er þá þrennt er. Arið 1931 hóf ungur kennari störf í Keflavík, Valtýr Guðjónsson (f. 1910- d. 1994) og kenndi hann síðan um ára- bil en sneri sér að öðmm törfum með vaxandi byggð. Valtýr var einn af stofnendum blaðsins Faxa sem hóf göngu sína síðla árs 1940. Hann varð um leið fyrsti ábyrgðarmaður blaðsins við stofnun þess. Valtýr var í eðli sínu hneigður til ritstarfa og ljóðagerðarenda fagurkeri í sál og sinni, en sinnti því þó minna en efni stóðu til. A árunum fram að seinni heimstyrjöld stjómaði hann um skað karlakór, en lagði frá sér sprotann að mestu leyti við upphaf stríðsins 1940. Greinar Valtýs í Faxa bera þessum listræna hrynjanda merki í stíl og máli. Valtýr bjó sjálfur yfir ríkri kímni, sem einatt birtist í dagfari hans. Sú kímnigáfa ásamt ágætu innsæi hans á ritað mál átti ekki síst þátt í því, hve snemma hann tók ástfóstri við verk Halldórs Laxness, löngu áður en hann hlaut Nóbelsverðlaunin 1955. Fagurgrænn uppmni Valtýs glapti honum ekki sýn á hina nýstárlegu kímni Halldórs, en það vaið varla sagt um alla liðsmenn Jónasar Jónssonar frá Hriflu á þeim ámm. Kímnigáfa Valtýs auðveldaði hon- um mannleg samskipti og hún vaið úl þess meðal annars að fleyta honum upp í það forystusæti hjá framsóknar- mönnum sem hann skipaði um árabil. Löngu seinni, þegar ég á árabilinu 1981-1987 var tengdur Fjölbrauta- skólanum, sagði Valtýr við mig eitt sinn er við ræddum saman um liðin ár. „Ég reyndi að liðsinna fólki eins og ég gat.“ Enda vom þeir margir sem leit- uðu liðsinnis Valtýs. Valtýr var mikill tilfinningamaður og gamall nemandi hans úr skólanum 70 FAXI Jón Tómasson við Skólaveg sagði mér, að þegar Valtý hitnaði í hamsi, hafi hárið á höfði hans risið eins og kambur á hana. Annars hafði Valtýr ágætt lag á krökkunum og lempaði spennuna með kímni sinni og stillingu. En Valtýr var líka gæddur innsæi í heim talna og bókhalds og sýsl með útreikninga og skikkun talna í dálka, varð síðan ævistarf hans með einum og öðrum hætti eftir að hann hætti kennslu. Þessir hæfileikar hans komu honum að góðum notum á skákborði bæjar- mála í Keflavík, er hann hóf afskipti af þeim við kosningar til hreppsnefnd- ar 1946. Fram til 1954 starfaði flokkur hans með alþýðuflokksmönnum undir forustu Ragnars Guðleifssonar, en þeim Valtý og alþýðuflokksmönnum samdi misjafnlega enda voru Ragnar og Valtýr ólíkir að ýmsu leyti. Valtý gekk til að mynda betur á margan hátt að vinna með sjálfstæðismönnum að hann sagði mér sjálfur. Við kosning- arnar 1954 vaið Valtýr í oddaaðstöðu og gekk þá til liðs við sjálfstæðismenn gegn því að fá stól bæjarstjóra næstu fjögur árin. Sumir segja að Valtýr sé besti bæjarstjóri sem setið hafi í Kefla- vík. Valtýr var neftóbaksmaður á ís- lenska vísu og bauð hann mér stund- um í nefið þegar við ræddum saman í Fjölbrautaskólanum. Aðallega stafaði Valtýr Guðjónsson sú gestrisni hans þó af stríðni við mig, mann sem þoldi ekki nokkurt korn í nefið. Það vissi Valtýr. Sótti ég þá ávís- anir til Valtýs en bar um leið upp við hann spumingar um bæjarmálin, Faxa eða vandamál tengd kveðskap og leit- aði álits hans á einstökum höfundum. Hann tók þá stundum allhressilega í nefið svo tóbakið gusaðist í allar áttir. Um það bil þegar ég kvaddi hann dró hann upp rauðköflóttan klút og snýtti sér. En silfurdósin var jafnan á skrifborðinu innan seilingar við hlið vel yddaðs blýants, sem hann tók upp og hélt áfram að reikna. Valtýr var alla tíð kappsamur við störf sín, þaulsetinn við skrifboiðið í Fjölbrautaskólanum og reiknaði næst- um allt með blýanti. Oft loguðu ljós í skrifstofu hans í skólanum langt fram eftir kvöldi, löngu eftir að aðrir vom famir eða vom í fríi. n. Á þessum ámm, 1981-1987, var Jón Tómasson ritstjóri Faxa. Sá tími má ef til vill kallast annað blómaskeið í sögu Faxa. Hið lyrra var tímabil Hallgríms Th. Bjömssonar, sem rit- stýrði blaðinu frá því fyrir 1950 og fram til ársins 1972. Árin 1940-1950 vom mótunarár blaðsins og Jón fylgdi að mörgu stefnu þeirra ára í efnisvali og lesendum gast oftast vel að, svo blaðið vaið vin- sælt. Magnús Gíslason, sem ritstýrði Faxa 1972-1979, fór aðrar leiðir, sem gáfust misjafnlega og ekki var laust við að gamlir velunnarar blaðsins glöt- uðu tengslum við það. III. Jón Tómasson (f. 1914 - d. 1996) var andstæður Valtý Guðjónssyni á ýmsan hátt, þótt margt ættu þeir sam- eiginlegt. Uppmni þeirra var t.d. ólík- ur. Jón var framan af ævi sjómaður, vélstjóri í Grindavík enda þótt hann ælist að mestu upp í Keflavík. Al minnsta kosti mundi Ólafur frá Litla- Hólmi eftir því að foreldrar Jóns höfðu af einhverjum ástæðum komið honum í tímabundna dvöl hjá Einari kop- arsmið Einarssyni og Guðrúnu ráðs- konu hans á Klapparstíg, þegar Jón var komungur, líklega strax 1914- 1915. Eftir þessu hefur verið náin vin- átta á milli foreldra Jóns, þeirraTómasar Snorrasonar skóla- stjóra og Jómnnar konu hans og kop- arsmiðsins og ráðskonu hans. Jón slasaðist svo alvarlega á hendi þegar hann var á báti í Grindavík, að hann bar þess merki alla ævi, eftir mistök sem læknir gerði, sem bjó um meiðslin. Jón stundaði þó nám í Sam- vinnuskólanum og varð síðan sím- stöðvarstjóri í Keflavík 1940 - 1977. Jón skrifaði mikið í Faxa á stríðsár- unum og oft síðar, en mest á meðan hann var ritstjóri blaðsins 1979-1987. Á fyrri ámm tók Jón líka fjölda ljós- mynda sem margar birtust í Faxa fram undir 1960 og síðar sem ritstjóri tók hann iðulega sjálfur myndir í blaðið. Raunar var Jón einn helsti fréttaljós- myndari á Suðumesjum á ámnum lil 1960 og birtust myndir hans víða í blöðum og urðu sumar þjóðkunnar. Við Jón Tómasson hafði ég allmikil samskipti og á ég mjög góðar minn- ingar um þau. Jón var afar kappsamur og bar alla tíð hag blaðsins mjög fyrir brjósti. Hann sýndi það oft hve mikils hann mat það sem aðrir unnu í þágu þess. Þannig hringdi hann iðulega í mig að fyrra bragði íyrirhverjól og

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.