Faxi

Volume

Faxi - 01.12.2000, Page 36

Faxi - 01.12.2000, Page 36
Jórunn Tómasdóttir Verkefnisstjóri Evrópsks tungumólaórs 2001 Evrópskt tungumálaár 2001 Evrópuráðið og Evrópusam- bandið standa sameiginiega að undirbúningi og skipu- lagningu Evrópsks tungumálaárs 2001. ísland er eitt þátttökulanda. Markmið tungumálaársins er að vekja athygli á fjölbreytni tungu- mála og menningar í Evrópu, vinna að fjöltyngi Evrópubúa og stuðla að símenntun á sviði tungumála. ís- lensk landsnefnd fyrir tungumála- árið var skipuð í febrúar og er henni m.a. ætlað að gera tillögur að dag- skrá og aðgerðum hér á landi. í nefndinni eiga sæti fulltrúar menntamálaráðuneytisins, Sam- taka tungumálakennara á Islandi, samstarfsnefndar háskólastigsins, Islenskrar málnefndar og Sam- bands íslenskra sveitarfélaga. Landsnefndin hefur ákveðiðaðlegg- ja áherslu á kennslu bæði erlendra tungumála og íslensku á tungu- málaári auk táknmáls. Aðgerðum og dagskrá Evrópsks tungumálaárs 2001 er fyrst og fremst ætlað að höfða til almennings. Stefnt er að því að örva áhuga jafnt fullorðinna sem ungs fólks á að læra ný tungumál, hvetja þá til að auka ijölbreytileika í tungumálanámi sínu og kynnast nýj- um menningarheimum þannig að þeir verði hæfari bæði heima og erlendis með tilliti til atvinnu, tómstunda og menningarlæsis. Aðild íslands mun felast í þátttöku í samevrópskum sem og innlendum að- gerðum. Opnunarathöfn Evrópsks tungumálaárs verður í Lundi í Svíþjóð dagana 18.-20. febrúar 2001 en loka- athöfnin verður haldin í Brussel í des- ember. Evrópsk vika tungumála- náms innan fullorðinsfræðslu stendur frá 5.-ll.maí og Evrópskur tungu- máladagur verður haldinn 26. septem- ber. Einnig kemur margt fleira til s.s. útgáfa handbókar fyrir tungumála- nemendur, sameiginlegt merki og slagoið. Það er ljóst að ísland mun veiða virkur þátttakandi í ofannefndum dagskrárliðum. Innlend dagskrá er enn í mótun og ýmsar hugmyndir hafa komið ffarn hjá landsnefndinni. Rætt hefur verið um að tengja árlega viðbuiði hérlendis á sviði tungumála, s.s. upplestrarkeppni grunnskólanna, frönsku ljóðasam- keppnina, þýskuþrautina og Dag ís- lenskrar tungu Evrópsku tungumála- ári 2001. Viðurkenning fyrir nýbreytni í tungumálakennslu, Evrópumerkið, (European Label) verður veitt á árinu. Ráðgert er að halda ráðstefnu um tungutækni og einnig er áætlað að halda málþing um stefnur og strauma í tungumálakennslu og þörfina fyrir tungumálakunnáttu í atvinnulífinu. í maí verður haldin samnorræn ráð- stefna þar sem fjallað verður um noið- urlandamálin sem erlend og önnur mál. Komið hefur fram hugmynd um útgáfu bæklings um sögu og stöðu ís- lensks máls sem dreift yrði til erlendra aðila. Leitast verður við að virkja fjöl- miðla þannig að þeir fjalli meira en gert hefur verið um mikilvægi jjess að kunna tungumál. Gert er ráð fyrir að opnunarhátíð tungumálaársins veiði hér um mánaðamót janúar og febrúar. Framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins veitir styrki til verkefna á tungumálalárinu og birtist auglýsing þess efnis í Morgunblaðinu í septem- ber síðastliðnum. Styrkupphæðin getur orðið mest 50% af styrkbærum heild- arkostnaði við verkefnið og nema upp- hæðir frá krónum 700.000 - 7.000.000. Reiknað er með að veita styrki til u.þ.b. samtals 150 verkefna í þátttökulöndunum. Þeir sem geta sótt um styrki eru mennta- og menningar- stofnanir, stofnanir og samtök á veg- um bæjar- og sveitarstjórna, frjáls fé- lagasamtök, rannsóknastofnanir, aðil- ar vinnumarkaðarins og fyrirtæki. Fyrri umsóknafrestur rann út 2. októ- ber en sá síðari er til 15. febrúar 2001. Eg vil að lokum hvetja alla þá sem koma að tungumálakennslu til aðgeiða sem gætu orðið hluti innlendrar dag- skrár á Evrópsku tungumálaári 2001. Þeir fengju afnot af samevrópsku merki ársins og slagorði. Það væri t.d. tilvalið fyrir skólana að nýta þemavik- ur og opna daga í þágu kennslu og náms í tungumálum. Þeir sem hafa áhuga geta fengið allar nánari upplýs- ingar hjá Jórunni Tómasdóttur, verk- efnisstjóra Evrópsks tungumálaárs 2001, netfang: jorunn.tomasdott- ir@mrn.stjr.is og hjá Maríu. Gunn- laugsdóttur, deildarsérfræðingi í menntamálaráðuneytinu, netfang: maria.gunnlaugsdottir@mrn.stjr.is Einnig er bent á heimasíðu mennta- málaráðuneytisins þar sem er að finna upplýsingar um tungumálaárið. Vetrardekk í úrvali Önnumst einnig allar bílaviðgerðir. Vanir menn, vönduð vinna. Sími: Kristmundur Árnason, Guðleifur Guðmundsson, Marinó Adolfsson 421 4650 421-4610 84 FAXI

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.