Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.2000, Blaðsíða 39

Faxi - 01.12.2000, Blaðsíða 39
AFÆLISKVEÐJA FRÁ „FAXABARNI": VILTU „SELJA' FAXA? Já sko til Faxi bara orðinn 60 ára, þetta blað sem hefur fylgt mér allt frá því ég man eftir Her á Brekkubrautinni. A þessum t'nia fyrir u.þ.b. 35 árum var Krekkubrautin miðpunktur heims- 'ns, leikvöllur og uppeldisstöð. Svo stækkaði þessi heimur, yfir Hring- brautina og út á fótboltavöll þar sem Siggi Steindórs gaf strákum nammi ef þeir vildu koma í KFK en Brekkubrautarstrákamir voru allir 1 Ungó og það þýddi ekkert að reyna að plata þá yfir enda held ég að Siggi hafi aldrei gert tilraun til þess. En einu sinni í mánuði fylltist inn- ^eyrslan að Brekkubraut 7 af krökkum Sern voru komin til að selja Faxa. Hall- grímur Th. Björnsson ritstjóri var kennari í litla skólanum og því varauð- velt fyrir hann að fá söluböm. Margir keflavískir krakkar unnu sér þama inn sin fyrstu laun. Þegar maður er bara 4 eða 5 ára þá er maður of ungur til að selja Faxa og því sat maður í gluggan- I um í húsinu við hliðina og horfði á stóm krakkana í biðröð sem náði kingt út á götu. Manni fannst þetta vera næstu því fullorðið fólk. Eitt af því fyrsta sem ég man eftir mér var að ég var inni í eldhúsi hjá mömmu og heyrði eitt af systkynunum kalla að það væri Faxi. Eg greip því næsta poka sem ég sá og setti í hann nokkur gömul dagblöð og gekk síðan í húsin við götuna og spurði: „Viltu selja Faxa?“ Ég fékk einhvem smápening og lét í staðinn gamlan Tíma eða Mogga. Nokkmm árum sein- na fór ég í röðina og hef eflaust verö með einhver skemmtiatriði fyrir krakk- ana. Hallgrímur kallaði á mig og ég fékk hjá honum nokkur blöð til að selja við götuna. Brekkubrautin var mitt hverfi og allir keyptu Faxa, „alvöm“ Faxa. Þá lærði maður það að það ætti að segja „viltu KAUPA Faxa“. Svo um þaðleitisemégvarorðinnnógugamall I úl að taka að mér margar götur flutti Hallgrímur til Reykjavíkur og Faxi út í bæ og þá vom komnir einnig aðrir möguleikar að vinna sér inn smá pen- ing og ekki mikill áhugi að selja blöð. Einu ári eldra en Blaðið Faxi er Mál- fundafélagið Faxi sem er útgefandi blaðsins. Pabbi hefur veriðFaxafélagi á fimmta áratug og einu sinni, stundum tvisvar, á vetri vom haldnir Faxafundir heima. Þá var stofan gerð fín og flott og gerð smá skipulagsbreyting, stólum raðað öðmvísi þannig að allir gátu séð alla. Svo var keypt súkkulaði og brjóst- sykur og um það leyti sem pabbi fór á rótarýfund var stofunni lokað og eng- inn fékk að koma þangað inn. Þó laum- aðist maður og fékk sér smá súkkulaði- bita. Mamrna bakaði tertu og bjó til rjómapönnukökur og fleira góðgæti sem var ekki á borðum á hverjum degi. Og oft lét maður sig hafa það að bíða eft- ir að fundinum lyki um miðnætti til að fá afganginn af veisluföngunum. Og svona er þetta enn í dag þó maður sé löngu fluttur að heiman þá kíkir maður ekki á Brekkubrautina í þetta skipti heldur upp í Vatnsholt daginn eftir Faxafund og fær sér ijómapönnuköku. Til er saga frá því er ungur kennari við bamaskólann var að aðstoða nem- anda í landafræðiprófi. Nemandinn átti erfitt með nám svo ungi kennarinn las spumingamar sem vom á prófblaðinu og skrifaði svörin. Ein spumingin var :„Hvað heitir flóinn sem Keflavík stendur við?“ Nemandinn hafði það ekki alveg á hreinu svo kennarinn ákvaðaðgefa honum smá vísbendingu: „Það er blað í Keflavík sem heitir eftir þessum flóa.“ „Er það Suðumesjatíð- indi?” Ég óska Málfundafélaginu Faxa og Blaðinu Faxa til hamingju með afmæl- ið. Gísli B. Gunnarsson. VlÐ ÓSKUM STARFSFÓLKIOKKAR, VIÐSKIPTAVINUM OG ÖLLUM SUÐURNESJABÓUM GLEÐILEGRA JÓU OG FARSÆLDAR Á KOMANDIÁRI. KEFLAVÍKURVERKTAKAR FAXI 87

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.