Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.2000, Side 42

Faxi - 01.12.2000, Side 42
FAXI JÓLAitLAI) 2(100 Jólin í fyrri daga GUÐBJÖRG JÓNSDOTTIR HÚSFREYJA Á BRODDANESI Á STRÖNDUM Gömul kona, sem ólst upp hjáfátœkum foreldrum sínum í nánd við foreldra mína, hefur sagt mér að einu sinni fyrir jólin hafi móðirsín œtlað að fara að sjóða reykt selkjöt til jólanna, en þá hafi einn af vinnumönnum foreldra minna komið með hemgikjöt og fleira sœlgœti, og svo ógleymanlegu kertin. Mikil gleði sagði hún að þá hefði verið í litla kotbœnum. Úr endurminningabók Guðbjargar Gamlar glæður, þættir úr daglegu lífi á Ströndum á síðari hluta 19. aldar. Helgi Hjörvar bjó til prentunar en ísafoldarprentsmiðja h.f. gaf út. Nokkru fyrir jólin lét móðir mín steypa mikið af kertum. Þann dag fór hún snemma á fætur til þess að tvinna rökin. Þau voru úr ljósagami. Þann morgun þótt mér mjög gaman að vakna í rúminu fyrir ofan móður mína, sjá hana tvinna rökin og láta þau á kerta- spýtumar. Þá fannst mér ég vera stödd í fordyri jólahátíðarinnar. Rökin vom látin á mjóar spýtur, tvö og þrjú á hver- ja, og stundum fleiri, eftir því hvað spýtan var löng. Þegar farið var að stey- pa, vom tvær árar látnar á kláfa í eld- húsinu, þar á milli var svo kertaspýtun- um raðað. Svo var strokkurinn látinn á gólfið hjá ámnum og skorðaður með gijóti, síðan hellt í hann heitu vatni og tólg. Þá var rökunum dyfið ofan í, en þess á milli látið kólna á spýtunum. Þetta var endurtekið þangað til kertin vom orðin nógu gild. Móðir mín átú kertaform, en það var ekki notað, nema þegar lítið þurfti að steypa. Oftast var verið nærri allan dag- inn að steypa kertin. Móðir mín þurfti mikið á kertum að halda, hún var örlát á þau, eins og annað. Öllum unglingum á heimilinu gaf hún kerti, þegar steypt var. Ég man hvað mér þótti vænt um litla kertið mitt, það var svo bjart á því ljósið. En skammdegismyrkrið í gamla bænum var svo svart og svo langt. Fyr- ir jólin var baðstofan þvegin og allt hreinsað og prýtt. Askar, dallar og öskj- ur var þvegið upp úr hangikjötssoði. A fyrri ámm höfðu foreldrar mínir gefið fátæku fólki, sem nálægt þeim var, gjafir fyrir jólin, matvæli og fleira. Kerti vom send til fátækra bama í sveitinni. Gömul kona, sem ólst upp hjá fátækum foreldrum sínum í nánd við foreldra mína, hefur sagt mér að einu sinni fyrir jólin hafi móðir sín ætl- að að fara að sjóða reykt selkjöt til jól- anna, en þá hafi einn af vinnumönnum foreldra minna komið með hangikjöt og fleira sælgæti, og svo ógleymanlegu kertin. Mikil gleði sagði hún að þá hefði verið í litla kotbænum. Ekki vom jólin áður gerð dýrleg með kökubakstri eins og nú er siður. Þá var ekki annað búið til með kaffinu en lummur úr sigtuðu grjónamjöli og kleinur og pönnukökur úr sigtuðu rúg- mjöli. Allir höfðu fataskipti á aðfangadags- kvöld og þvoðu sér. Þeir sem vildu þvo eitthvað meira en hendumar og andlit- ið, fóm út í ijós, þar var hlýjast að vera við þvottinn. En ekki má skilja orð mín svo, að fólkið hafi ekki þvegið sér nema á jólunum. Það þvoði sér oft og greiddi, eftir bestu vitund, og sumar stúlkur höfðu mikið hár, þá þótti það prýði. Mikið hlakkaði ég til aðfangadags- kvöldsins. Þá fékk ég að fara í bestu fötin sem ég átti til, og mér fannst ég vera ákaflega fín, en um það hugsaði ég mikið. Þegar búið var að kveikja og all- ir höfðu haft fataskipti, fór móðir mín fram í stofuloft til að sækja kertin. Hún gaf öllum á bænum tvö kerti, eins fólk- inu á búi systur minnar. Síðari árin var hér tvíbýli. Faðir minn fékk tvö kerti eins og aðrir, þó að hann væri blindur. Ég man hvað hann var sviphýr, þegar hann var að handleika kertin, sem móð- ir mín gaf honum. Þegar allir vom búnir að fá kertin, fjölgaði ljósunum í baðstofunni. Nú vom blessuð jólin komin. Sumt fólkið kveikti á kerti og fór að lesa í bók. Aðr- ir tóku skrifpúltin sín og fóm að lesa. Nú höfðu allir nóga birtu, nema faðir minn. Þó var enginn glaðari en hann. Verið getur að hann hafi einhverstaðar átt stærra ljós en við hin. Lýsislampinn í dyrastafnum hætti nærri að bera birtu, kóngakertin á borðinu yfirgnæfðu birtu hans. Ljósafjöldinn hefur vafalaust mikið stuðlað að því að gera jólin svo dýrðleg sem þau vom í huga manna. Þessi smáljós, sem lýstu í lágum híbýl- um dauðlegra manna, minntu á stóra al- heimsljósið: bamið í jötunni. Húslestrar vom þá engin nýjung. Þó fannst mér eitthvað meira við jóla- lestrana en vanalegt var. Þá var miklu meira sungið, og allir sungu, sem söng- rödd höfðu. Ráðsmaðurinn var for- söngvarinn, hann söng laglega, en fátt kunni hann af nýjum lögum. Oftast var byrjað á þessum sálmi: Þjer, mikli guð, sje mesti pris! Vor mildi guð! vjer þökkum þjer, o.s.frv., eða jólasálmin- um: Með gleðiraust og helgum hljóm. I Ekki vom sungnir færri en fjórir sálm- ar, tveir fyrir og tveir eftir, stundum meira. A meðan faðir minn las og söng sjálfur, hafði hann sungið fjórtán sálma á aðfangadagskvöldið. Það er minna nú á dögum. Skemmtanir vom engar á jólakvöld- ið, nema að lesa í bókum, og var fólkið að mestu leyti sjálfrátt um hvað það las. Móðir mín las í Biblíunni fyrir 90 FAXI

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.