Vísbending - 29.02.2008, Blaðsíða 1
29. febrúar 2008
8. tölublað
26. árgangur
ISSN 1021-8483
1 2 4Væntingar hafa mikla þýðingu í hagfræðinni.
Hvað gerist nú þegar
svartsýni eykst?
Er lækkun á hluta-
bréfavísitölunni að
undanförnu bara
nauðsynleg leiðrétting?
OECD gaf út nýja skýrslu
um íslenskt efnahagslíf.
Þar eru mörg góð ráð.
Íslendingar komast ekki
inn í evrusamstarfið
nema gegnum ES-aðild.
Hvað á þá að gera?
3
Vikurit um viðskipti og efnahagsmál
Síðustu og verstu tímar
V í s b e n d i n g • 8 . t b l . 2 0 0 8 1
Framhald á bls. 4
Bankakreppan sem við upplifum núna er upprunnin í Bandaríkjun-um. Samt er ástandið á Íslandi orð-
ið miklu verra en í „guðs eigin landi” eins
og Bandaríkjamenn kalla föðurland sitt
stundum. Hlutabréf hafa fallið mun meira
í verði hérlendis en þar, vextir eru hærri,
verðbólga meiri og erlendir fjölmiðlar og
fjármálastofnanir keppast við að gera lítið
úr hagkerfinu. Samt eru Bandaríkjamenn
svartsýnni. Hvað veldur því?
Væntingavísitala
Það er vel þekkt í hagfræðinni að vænting-
ar manna eru mjög mikilvægar fyrir hag-
sveiflur vegna þess að með því að þjóðin
hagi sér í samræmi við það ástand sem
hún á von á kallar hún fram það ástand.
Einfalt dæmi er að þegar menn búast við
verðhækkunum flýta menn sér að kaupa
á „gamla verðinu”, eftirspurn eykst og
verð hækkar. Vandi hagfræðinga er hins
vegar sá að erfitt er að mæla væntingar
sem eru huglægt ástand. Til þess að nálg-
ast slíkar upplýsingar er byggt á skoðana-
könnunum. Gallup hóf slíkar mælingar
hér á landi árið 2001 en erlendis er lengri
hefð fyrir slíkum mælingum. Byggt er á
sambærilegum aðferðum hér á landi og í
Bandaríkjunum.
Væntingavísitala Gallups er byggð á
fimm spurningum:
• Mati á núverandi efnahagsaðstæðum.
• Væntingum til efnahagslífsins eftir
6 mánuði.
• Mati á núverandi ástandi í atvinnu-
málum.
• Væntingum til ástands í atvinnumálum
eftir 6 mánuði.
• Væntingum til heildartekna heimilisins
eftir 6 mánuði.
Fyrir hverja spurningu hér að ofan er
deilt í fjölda jákvæðra svara með heildar-
fjölda svara. Útkoman er hlutfall sem er
síðan margfaldað með 200 og þá fæst tala
sem getur tekið gildið 0 til 200. Það að
væntingavísitala Gallup sé 100 merkir
því að það eru jafnmargir jákvæðir og nei-
kvæðir svarendur. Ef hún er hærri en 100
eru fleiri jákvæðir og ef hún er lægri eru
fleiri neikvæðir.
Á mynd sést samanburður á væntinga-
vísitölunni í Bandaríkjunum og á Íslandi
undanfarin ár. Í upphafi aldarinnar voru
menn tiltölulega bjartsýnir í báðum
löndum og vísitalan nánast í sama gildi
á báðum stöðum. Um þetta leyti sprakk
netbólan svonefnda og hlutabréfaverð
snarlækkaði. Við þetta urðu menn dapr-
ari. Árásin á tvíburaturnana 11. septem-
ber 2001 varð til þess að auka mönnum
enn svartsýni. Íslendingar voru þó fljótir
að ná sér upp úr lægðinni, en Bandaríkja-
menn náðu ekki botninum fyrr en vorið
2003 þegar Íraksstríðið hófst.
Íslendingar kipptu sér hins vegar ekki
upp við stríð úti í heimi heldur náðu sér
á strik og sveifluðust í kringum gildið
120 næstu þrjú árin. Það þýðir að menn
voru frekar bjartsýnir. Bankakreppan vor-
ið 2006 skaut mönnum hins vegar skelk
í bringu hér á landi og í skamman tíma
blasti svartnættið við. Þá jókst kátína
manna hér á landi á ný og náði hæstu hæð-
um í maí, nokkrum mánuðum áður en
hlutabréfavísitalan náði sama ástandi.
Bandaríkjamenn létu sér fátt um þetta
finnast (og vissu væntanlega fáir af Íslandi
og ástandinu þar) og héldu jafnlyndi og
vísitalan var skammt frá 100. Frá því í
maí 2007 hefur leiðin legið niður á við
í báðum löndum. Nýjasta gildi í Banda-
ríkjunum er 75 sem er eitt lægsta gildið
á tímabilinu. Á Íslandi er nýjasta gildi
væntingavísitölunnar 102. Andlegt ástand
manna er betra hérlendis en þar en stefnir
niður á við eins og vestan hafs.
Hvaða áhrif
hefur svartsýni?
Húsnæðisverð hefur lækkað í Bandaríkj-
unum. Það hefur ekki gerst enn hérlendis
en viðskipti hafa dregist saman. Bankarnir
Mynd 1. Væntingavísitala í Bandaríkjunum og á Íslandi