Vísbending


Vísbending - 13.02.2009, Síða 4

Vísbending - 13.02.2009, Síða 4
4 V í s b e n d i n g • 7 . t b l . 2 0 0 9 framhald af bls. 3 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Benedikt Jóhannesson Útgefandi: Heimur hf., Borgartúni 23,105 Rvík. Sími: 512 7575. Myndsendir: 561 8646. Net fang: visbending@heimur.is. Prentun: Heimur. Upp lag: 700 eintök. Öll réttindi áskil in. © Ritið má ekki afrita án leyfis út gef anda. Aðrir sálmar Forsetaskrifstofan hefur ekki sent frá sér eftirfarandi tilkynningu: Í tilefni af grein Eiðs Guðnasonar sendiherra í Morgunblaðinu vill skrifstofan taka það fram að forseti lýðveldisins hefur lesið miklu fleiri skýrslur sendiherra en Eiður. Skýrslur sendiherra eru yfirleitt mjög vitlausar. Afar vitlausar. Það kemur til af því að sendiherrar eru yfirleitt fullir á samkomum og vita því ekkert hvað þar fer fram. Sendiherrarnir sem komu saman á byltingardaginn 7. nóvember voru mjög spældir því að forseti lýðveldisins talaði í tvo tíma, átti mjög gagnlega samræðu, eða svo vitnað sé í grein Eiðs: „Greinarhöfundur hefur líka rætt við annan sendiherra, langreyndan diplómat, sem hlýddi á Ólaf Ragnar í þessum hádegisverði. Hann sagði: „This was a once in a lifetime experience“ – eða „Svonalagað upplifir maður aðeins einu sinni á ævinni“.“ Þarf frekar vitnanna við? Sendiherrarnir, þeir sem ekki voru allt of fullir til þess að skilja hve merkilegt er að vera náinn forseta lýðveldisins, töldu þetta alveg einstaka tilfinningu. Forseti lýðveldisins er afar upptekinn maður. Hann þarf að mynda ríkisstjórnir, ræða við fréttamenn í erlendum glamúrblöðum og gæta þess að konan hans verði sér ekki til skammar. Hann má ekki vera neitt að því að leiðrétta einhvern sparðatíning í blöðunum. Hvernig dettur einhverjum sendiherra, sem síðast var í Færeyjum „of all places“, að vilja eitthvað upp á dekk. Öll grein sendiherrans er uppspuni frá rótum. Hann segir meðal annars: „Ólafur Ragnar sagði þar meðal annars, að Rússum stæðu allar dyr opnar á Íslandi, hvort sem um væri að ræða olíuhreinsunarstöð eða aðstöðu á Keflavíkurflugvelli. Íslendingar þyrftu að finna sér nýja vini.“ Í fyrsta lagi er þetta ósatt, í annan stað átti forsetinn við að hann þyrfti að eignast nýja vini aðra en kratadindla eins og Eið Guðnason og í þriðja lagi er ekkert að þessum skoðunum. Forsetinn mótar utanríkis- stefn una milli þess sem hann stöðvar útrennsli til Þjóðverja úr bankakerfinu og heldur aftur af aröbum á Íslandi. bj Þú mátt ekki tala svona, Eiðurnytjagreiningu fyrir hvert verkefni sem kemur til greina til að vera viss um að það standi undan sér. Slíkt getur verið tímafrekt og ekki er hægt að vera fullviss um niðurstöðurnar. Þá geta framkvæmdir á vegum ríkisins einnig dregið úr framkvæmdum í einkageiranum, sem alla jafna eru hagkvæmari. Þetta gerist vegna þess að ríkið tekur að einhverju leyti til sín fjármagn og vinnuafl sem einkageirinn hefði annars notað. Þessi áhrif eru þó alla jafna minni í kreppu en þenslu. Og að síðustu er hætta á því að erfitt verði að draga úr umsvifum hins opinbera, þegar þau eru komin á. Það ríkir sæmileg eining um að ríkið getur örvað efnahaginn að minnsta kosti til skamms tíma. Kárahnjúkavirkjun og meðfylgjandi þensla bera vitni um það. Hægt er að hjálpa fyrirtækjum að komast yfir erfiðasta hjallann og koma þannig komið í veg fyrir að félög sem skapa raunveruleg verðmæti fari á hausinn og að verðmæt þekking tapist. Hins vegar tefur það fyrir nauðsynlegum breytingum, bæði innan fyrirtækja og í samfélaginu í heild. Mögulega getur samdráttur einfaldlega orðið vegna nauðsynlegrar aðlögunar, þar sem fólk og fjármagn þarf að flytjast um set vegna úreltra atvinnugreina eða tækniframfara. Þrátt fyrir að ofangreindir ágallar eigi við almennt um hallarekstur ríkisins eru þeir ívið minni við skattalækkanir. Eins og áður sagði er umdeilt hver áhrifin eru eða hversu sterk þau eru. Útfærslur á hvoru tveggja geta einnig verið með ýmsum hætti og því er erfitt að alhæfa. Í öllu falli er aðeins verið að draga úr sjúkdómseinkennum þegar farið er í örvandi aðgerðir. Slíkt getur verið fullkomlega réttlætanlegt, enda eru þessi einkenni, svo sem atvinnuleysi og minnkandi kaupmáttur, oft mjög sársaukafull og hafa ekki aðeins efnahagslegar heldur einnig alvarlegar félagslegar afleiðingar. Þá getur reynst best að dreifa sársaukanum yfir lengri tíma. Hins vegar verður að gera grein fyrir því að undirliggjandi sjúkdómur í kerfinu er enn til staðar. Ef fjármálastofnanir og umgjörð fjármálakerfisins eru gölluð, þá skiptir engu hve miklu er eytt, umgjörðin verður ennþá jafn gölluð. Að takast á við sjúkdóminn sjálfan er annars eðlis, og óháð þeim aðgerðum sem hér eru reifaðar. Það ber þó að forðast að taka rangar ályktanir. Ríkisrekstur á bönkum hefur ekki gefist vel, frekar en á öðrum fyrirtækjum. Slíkt ber áralöng reynsla Íslendinga með sér. Hvað með Ísland? Kreppan hefur skollið á með meiri þunga á Íslandi en í öðrum löndum. Fyrirtækin eiga í miklum erfiðleikum með rekstur. Mörg þeirra hafa farið á hausinn eða eru á leiðinni í þrot. Atvinnuleysi hefur aukist hratt. Fólk hefur síður efni á neyslu þannig að eftirspurn minnkar. Því þurfa fyrirtækin að draga enn frekar saman seglin. Vegna þess hve háar erlendar skuldir ríkissjóðs eru, þá hafa Íslendingar minni möguleika en aðrar þjóðir til þess að „eyða sig úr“ vandanum. Þjóðinni bjóðast aðeins takmörkuð lán frá nágrannalöndunum og ekki er víst að það væri æskilegt að taka lán þótt þjóðinni byðust þau vegna mikils halla ríkissjóðs. Við værum betur sett hefði Kárahnjúkavirkjun fengið að bíða. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur að vísu veitt Íslandi leyfi til þess að taka inn verkjatöflu og reka hið opinbera með talsverðum halla á þessu ári, en strax á því næsta þarf að vera herða enn ólina. Þegar kemur til niðurskurðar á næsta ári munu líkast til margir til viðbótar missa vinnuna. Halli á ríkisfjárlögum núna getur orðið til þess að hjálpa okkur í gegnum nauðsynlega aðlögun, en mun ekki verða til þess að auka landsframleiðslu til lengri tíma. Útfærslan getur þó verið með ýmsum hætti og skiptir mestu hvernig aðgerðirnar eru framkvæmdar. Íslendingar eru ekki eina þjóðin sem hefur lent í gjörgæslu hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Sjóðurinn hefur hingað til sett þjóðir í strangara aðhald en ríkir hér á landi. Þær þjóðir hafa þurft að fara strax í sparnaðaraðgerðir og draga úr ríkisútgjöldum. Einnig hefur hann gert strangari kröfu um engin afskipti af gjaldeyrismarkaði. Fyrir vikið hafa viðkomandi lönd farið í gegnum skarpari efnahagslægðir, en á móti hafa þau oft náð sér á strik á furðu skömmum tíma. Reynslan bendir til þess að þjóðin muni ná sér upp úr núverandi kreppu, jafnvel þótt ríkisstjórnin hafi takmarkaðan straum á startköplunum. Ef fjármálastofnanir og umgjörð fjár mála­ kerfisins eru gölluð, þá skiptir engu hve miklu er eytt, umgjörðin verður ennþá jafn gölluð. Kári S Friðriksson.

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.