Búfræðingurinn - 01.01.1940, Blaðsíða 7
Fimmtíu ára minningarhátíð
Hvanneyrarskólans.
Um krossmessu vorið 1889 stofnaði Suðuramtið bún-
aðarskóla að Hvanneyri í Borgarfirði. Hefir liann starfað
þar óslitið síðan og átti því 50 ára starfsafmœli á síðast
liðnu voru — 1939. Nemendafélagið Hvanneyringur gekkst
fyrir hátiðahöldum í tilefni af afmælinu, og stóðu þau
vfir dagana 24. og 25. júní. Það þykir hlýða að skýra hér
nokkuð frá afmælishátíð þessari, einkurn vegna þeirra
Hvanneyringa, er eldki voru viðstaddir, en lesa þetta rit.
Síðari liluta velrar og snemma vors 1939 var þegar aug-
lýst í útvarpi og daghlöðum, að hátiðahöld myndu fram
l'ara skömmu eftir miðjan júní í lilefni af 50 ára afmæli
Hvanneyrarskólans. Var þá strax ákveðið, að þau skyldu
standa yfir tvo daga, þar sem fyrri dagurinn yrði aðal-
lega lielgaður Hvanneyringum og meðal annars haldinn
aðalfundur Hvanueyrings, en siðari daginn yrði almenn
samkoma. Var skorað á Hvanneyringa að fjölmenna og
senda umsókn um dvöl á Hvanneyri hátiðisdagana.
Er leið á vorið, tóku umsóknir að berast um þátttöku
í afmælisfagnaðinum, og jafnframt var hafinn undirbún-
ingur til þess að táka á móti gestunum og prýða staðinn.
Var allmikið verk lagt í þetta hvort tveggja, og unnu
verknemarnir, ásamt öðrum, mikið að þessum undir-
])úningi. Jafnhliða þessum undirbúningi á staðnum sjálf-
um var unnið að því að fá hæfa skennntikrafta, svo sem
iæðumenn, söngmenn og íþróttaiðkendur. Loks má nefna,
að undirritaður vann að þvi aílt vorið að koma út bók
um starfssögu Hvanneyrarskólans í 50 ár, og reyndist
það unnt, þrátt fyrir margs konar tálmanir, og var hún
seld á Hvanneyri ]iátíðisdagana.