Búfræðingurinn - 01.01.1940, Blaðsíða 24
18
BÚFRÆÐIN GURINN
höfuðorsök þess, að niðurstöður RækLunarfélagsins með
ræktun hvitsmárans hafa ekki valdið skjótri byltingu i
ræktunarmálum okkar, af þvi ég veit, að ef áliugi og
skilningur bændanna og ræktunarmannanna liefði verið
lifandi og almennur i þessu máli, þá hefði verið auðvelt
að hrinda öðrum hindrunum úr vegi.
Önnur ástæðan er fjárþröng og vanmáttur tilrauna-
starfseminnar, sem veldur þvi, að aldrei er hægt að taka
nein tilraunaverkefni fyrir á nógu viðtækum grundvelli,
svo að fljót og örugg úrlausn fáist varðandi öll megin-
atriði. Af þessu leiðir, að lengur þarf að leita eftir not-
hæfum niðurstöðum heldur en æskilegt er, og tilrauna-
stöðvarnar verða oft og tíðum að láta eitt og annað frá
sér fara, áður en öll vafaatriði eru leyst, sem verulegu
máli skipta. Opinberar aðgerðir i ræktunarmálum hafa
sýnt mjög takmarkaðan skilning á þýðingu ræktunartil-
raunanna og undirstöðurannsókna og hafa því sára litla
þýðingu haft til að útbreiða ræktunarnýjungar, er til
verulegra umbóta eða framfara máttu verða. Iiins vegar
hefir miklu fé verið varið til þess að örfa, með beinum
styrkjum, skipulagslausar ræktunarframkvæmdir, án þess
að gera nokkurn verulegan mun á því, livernig ræktunin
er framkvæmd. Af þessu leiðir, að verulegur hluti þeirr-
ar ræktunar, sem framkvæmd hefir verið fyrir beinan til-
verknað þessara styrkveitinga, er engin ræktun, getur
aldrei gefið arð og er hrein hefndargjöf fyrir þá, sem
hennar eiga að njóta. Lítilsháttar hefir verið reynt að
breyta þessu i þá átt, að mismuna ræktuninni eftir þvi,
hvernig liún er af liendi leyst, en ekki er liægt að segja,
að um neina stefnubreytingu sé að ræða. Sá eini stuðn-
ingur, sem að verulegu haldi getur komið fyrir ræktun
landsins, er þekkingin á þvi, livernig á að framkvæma
arðvænlega ræktun, en hún fæst ekki, hversu miklu fé
sem við ausum i beina ræktunarstyrki til Péturs og Páls,
heldur aðeins með kerfisbundinni ítarlegri tilraunastarf-
semi, og ef við viljum styrkja ræktunarframkvæmdir, þá
eigum við aðeins að styrkja þær, sem eru í fullu sam-