Búfræðingurinn - 01.01.1940, Blaðsíða 61
BÚFRÆÐINGURINN
oo
Eigandi.
Helztu tekjuliöix- á reikningi eigandi eru kaup hans,
bæði við bústörf og út á við, og vextir af eign búgreina,
en helztu gjaldaliðir eru vinna og fæði, opinber gjöld, leiga
eftir fasteign og verkfæri, vextir af skuldum og ýmis
gjöld, en þar í eru talin margs konar útgjöld eiganda og
fjölskyldu lians, svo sem til fatnaðar, læknishjálp, út-
varpskostnaður, óþarfi, skemmtanir o. fl.
Hér á eftir eru sýndir helztu liðir eigandareiknings,
meðaltal fyrir árin 1934—1937, talið i kr. og %:
Vinnukostnaður og fæði . kr. 1273.05 51,6 %
Opinber gjöld — 115.05 4,7 —
Leiga eftir fasteign og verkfæri — 150.17 6,1 —
Greiddir vextir —. 264.27 10,7 —
Ýmis gjöld — 663.37 26,9 —
Alls kr. 2465.91 100,0 %
Kaup áætlaS eiganda .. . . — 1499.96 50,0 —
Fyrir vinnu út á viS . . . . — 419.78 14,0 —
Fengnir vextir —. 18.88 0,6 —
Vextir af eign búgreina . — 793.00 26,5 —
ASrar tekjur — 266.96 8,9 —
Alls kr. 2998.58 100,0 %
GróSi — 532.67
Taflan sýnir, að rúmlega lielmingur af útgjöldum
bændanna er vinna og fæði. Mestur hluti af þeirri upp-
hæð er fæði barna og annarra ómaga. Opinber gjöld, það
er hluti af þinggjaldi og útsvar, eru að meðaltali 115 kr.
eða 4,7%. Leiga eftir hluta þann, er eigandi telur sér sér-
staldega í iiúsum og verkfærum, er um 150 kr. Vextir af
skuldum eru að meðaltali um 264 kr., en ýmis gjöld
663 kr. eða um 27%. Alls nema útgjöldin fyrir eiganda
sérstaklega og fjölskyldu hans um 2 500 kr. að meðaltali.
Af tekjum bóndans er áætlað kaup lians lang stærsti
liðurinn, um 1500 kr. eða 50%. Þetta kaup er aðal-
lega ætlað eiganda og konu hans, en á stöku stað er kaup
barna talið þarna með. Víðast hvar eru þau þó talin naeð
verkafólki í þessu tilliti og þeim talið kaupið greitt. Auk