Búfræðingurinn - 01.01.1940, Blaðsíða 77
B U F R Æ Ð 1 N G U R I N N
71
smitandi, þá berst liún þó anðveldlega úr einni kú í aðra
i sama fjósi, aðallega við mjaltir. Ýmsar bakteríur valda
júgurbólgu, og er bólgan misskæð, eftir þvi livaða balct-
eríutegund er að verki. Aðalatriðið er að koma í veg fyrir,
að júgurbólgan breiðist út, og er þvi réttast, ef kýr fær
júgurbólgu, að hafa hana sér, aðskilda frá hinum kúnum
í öðrum enda fjóssins, ef ekki er haagt að koma við
betri einangrun. Ilelzt ætti sérstakur maður, sem ekki
injólkar hinar kýrnar, að mjólka hina júgurbólgusjúku
kú. Sé þess ekki kostur, á að mjólka júgurbólgukúna sein-
ast og sjúka júgurlilutann seinast í sérstakt ilát, cn ekki
i flórinn eða básinn, eins og stundum á sér stað. Mjólk-
inni úr sjúka júgurhlutanum skal hella í liaughúsið.
Um lækningu júgurbólgu er það fyrst, að hún þolir enga
bið. Sé júgurbólgan tekin strax föstum tökum, 'þá má
vænta góðs árangurs, en annars ekki. Aðalatriðið er að
mjólka oft úr hinum sjúka júgurhluta, ekki sjaldnar en
á kluklcustundar fresti, og er þá um leið hafður heitur
bakstur við bólguna. Sé þannig farið að undir eins og bólg-
unnar verður vart, má oft vinna bug á henni á 1—2 dög-
um. Þegar bólgan fer að minnka, er gott að viðliafa létt
nudd og kamfóruáburð. Kýr, sem fá júgurbólgu, ná sér
sjaldan með nythæð aftur á því mjólkurtímabili, en geta
orðið alveg jafngóðar næst, er þær bera, ef tekizt hefir að
forða júgrinu frá varanlegum skemmdum. — Við júgur-
bólgu er einnig sú aðferð notuð, að sprauta lyfjaupp-
lausnum upp í júgrið, t. d. Rivanol Trypaflavin — eða
Entozonupplausn; sú aðferð getur að svo stöddu ekki orð-
ið almennings eign. Hin aðferðin (tíðar mjaltir og bakstr-
ar) reynist ágætlega, ef rétt er á haldið.
Að lokum vil ég segja þetta: Kappkostið að hafa góðar
kýr, fóðrið þær vel og — hafið arð af þeim.
Gætið ítrasta hreinlætis og vandvirkni við mjólkurfram-
leiðsluna. Þeir, sem kaupa af ykkur mjólkina sem neyzlu-
mjólk eða mjólkurafurðir, eiga lieimtingu á því að fá
góðar vörur, en mjólkurbúin geta ekki framleitt þær nema
að mjólkurvinnslan sé vönduð frá fyrstu liendi.