Búfræðingurinn - 01.01.1940, Blaðsíða 100
94
BÚFRÆÐINGURINN
þær ekki því veikbyggðari. Fyrir aftan pípu þá, er kart-
öflurnar falla niður um, eru festir tveir diskar, er róta
moldinni saman yfir kartöflurnar og liylja þær þannig.
Fimm menn þarf alls við vélina með þeim, sem ekur. Er
talið, að með lienni megi leggja kartöflur í tvo ha á dag.
Vökvadreifarar voru sýndir af mörgum gerðum á land-
búnaðarsýningunni i Odense. Eru þeir ætlaðir til þess að
dreifa með vökvum til varnar gegn kartöflumyglu og
öðrum jurtasjúkdómum. Mikil þörf væri á því að nota
stík áhöld meira en gert er hér á landi, og gæitu nokkrir
bændur oft átt þau í sameiningu. Hentugir virtust mér
liílir dreifarar, er festir voru á litið hjól (líkt og hjól af
reiðhjóli), sem ekið er á undan sér. 25 litra dreifarar af
þeirri gerð kostuðu 75 danskar krónur.
„Snöc/g“. í Noregi sá ég einfalt verkfæri til þess að flýta
fyrir niðursetningu á kartöflum, og var því gefið nafnið
„Snögg“. Það er samsett af grind, er líkist grind á venju-
legu fjaðraherfi. Niður úr henni ganga tvö járn, sem að
neðan líkjast moldverpi á plógi, og eru þau hreyfanleg.
Annað járnið hýr til rás til þess að setja kartöflurnar
i, en hitt ýtir moldinni yfir kartöflurnar í siðustu röð.
Upptökuvélar fyrir kartöflur voru á búnaðarsýning-
unni í Odense af mörgum gerðum. Sumar þeirra hafa
skera, er ristir undir kartöflurnar, en gafflar kasta mold
og kartöflum til liliðar, og þarf svo að tína kartöflurnar
upp með liöndunum. Aðrar taka kartöflurnar og flytja
])ær upp á við eftir endalausri keðju, þar til að þær eru
komnar svo hátt, að þær geta faJ.lið niður í vagn, sem
ekið er meðfram vélinni. I>essar síðarnefndu vélar eru
stórvirkari, en ekki eins öruggar í gangi og liinar og all-
mikið dýrari. Hinar fyrrnefndu munu sennilega yfirleitt
lienta betur liér á landi.
Áhald til grisjunar rófna liefir verið fundið upp fyrir
nokkrum árum siðan. Má festa því að raðlireinsara. Það
Jireyfist þvert á rófnaraðirnar og Iieggur skörð í þær. Sið-
ar verður þó að grisja betur með arfasköfu, en þetta
flýtir fyrir.