Búfræðingurinn - 01.01.1948, Blaðsíða 10
8
BÚFRÆÐINGURINN
húsfreyja á Akureyri, Haukur skrifstofumaður í Reykjavík og
Hólmfríður, búsett í Vesturheimi.
Þó að hér liafi verið talin helztu æviatriði Jósefs, fer því fjarri,
að hér verði gerð grein fyrir störfum Jians til nokkurrar Jilítar.
Væri það þó bæði menningar- og þjóðfélagsnauðsyn, þar sem
Iiér er um mann að ræða, sem mikið vann að almennum mál-
um, og þó einkum vegna þess, að liann starfaði að því um
hálfrar aldar skeið að mennta og fræða unga menn. Hlýtur því
áhrifa lians að gæta í störfum og háttum fjölmargra manna um
land allt.
Jósef var stjórnmálamaður, bóndi og skólamaður. Hann
Iiafði mikinn áliuga fyrir stjórnmrfum, þegar á æskuskeiði og
æ síðan. Hann var frjálslyndur umbótamaður og því jafnan í
flokki þeirra, er mest börðust fyrir stjórnfrelsi og framförum í
atvinnumálum. Þó voru það oftast landbúnaðarmál. er lionum
voru efst í huga.
Jósef varð þingmaður Skagfirðinga 1908. Þá var ein liin harð-
asta kosningaJiríð, er háð hefur verið á landi hér. Kosið var um
sambandslagafrumvarpið fyrra. Jósef var mjög ákveðinn and-
stæðingur frumvarpsins og skipaði sér undir merki Björns Jóns-
sonar ritstjóra, er var formaður Sjálfstæðisflokksins, svo sem
kunnugt er. Sjálfstæðisflokkurinn lilaut mikinn sigur í kosn-
ingum þessum.
Á þingi munu kostir Jósefs liafa notið sín ágætlega. Hann var
þar, sem annars staðar, talinn meðal fremstu gáfumanna þjóð-
arinnar. Hann var mjög ákveðinn flokksmaður og þó sam-
vinnuþýður, rökfastur, ráðsvinnur og skaprór. Varð honunt
því gott til fylgis og vina. Hann ltafði forgöngu um ýms merk
þjóðmál og fékk miklu áorkað fyrir liérað sitt. Hann vann mjög
að skattalöggjöf og var formaður milliþinganefndar, er skipuð
var í launamálum. Ritaði hann ýtarlega um það efni.
Allmjög riðluðust þingflokkar þau ár, sem Jósef sat á þingi.
Myndaðis't þá flokkur þingbænda og var Jósef formaður þess
flokks. Margir bændur munu hafa harmað það, að þingmanns-
ferill Jósefs varð ekki lengri en raun varð á, enda fórst það
fyrir að Bændaflokkur sá gæti rutt sér til rúms, er Jósef og fé-
lagar hans liöfðu mikinn áhuga fyrir.