Búfræðingurinn - 01.01.1948, Blaðsíða 15
BÚI'RÆÐINGURINN
13
að minnast þeirrar merku nýjungar, er Jósef sendi töðu frá Hól-
um til efnarannsóknar. Er það fyrsta efnagreining íslenzkra
fóðurjurta, sem gerð liefur verið. Með því var vakin eftirtekt á
liinni miklu nauðsyn þess, að byggja rekstur hins íslenzka land-
búnaðar á vísindalegri þekkingu, að hætti merkra landbúnað-
arþjóða. En sú leið hefur verið seinfær og ærið margt er þar enn
óunnið, þó einstaka menn hafi sýnt lofsverðan áhuga.
Skólastjórn Jósefs var vinsæl og velmetin, af nemendum hans
og öðrum, er til þekktu og mikið lof fjölmargra nemenda sinna
hefur hann hlotið fyrir kennslustörf sín. í minningargrein, er
Jón Pálmason, forseti Alþingis, ritaði um Jósef, farast honum
meðal annars, orð á þessa leið:
„Jósef var sérkennilegur maður fyrir margra liluta sakir og
var eigi að undra þó ungir menn, sem þráðu þekkingu og höfðu
fáum fræðimönnum kynnzt, dáðust að honum. Hann var líka
elskaður og virtur af lærisveinum sínum. Hann var hið mesta
ljúfmenni í framkomu og viðmóti, glaðlyndur, fyndinn og
fundvís á það að vekja áhuga og fróðleiksþrá. Hann hafði á
j^ví sérstakt lag að gera hin þurrustu fræði aðlaðandi og
skemmtileg. Valdið yfir kennsluefni var óbrigðult, þekkingin
víðtæk og mælskan með afbrigðum.“
Annar merkur og mikilhæfur nemandi Jósefs, Pétur Jónsson,
féhirðir Almannatrygginga, fer mjög líkum orðum um kennslu
hans, enda mun það mjög samhljóða álit nemenda Jósefs, að
liann hafi verið ágætur kennari.
Jósef sarndi bækur, sem bæði hann og aðrir notuðu við
kennslu í jarðfræði og steinafræði og fjölmargar greinar um
búnaðarmál og fl.
Þá er Hólaskóli var hálfrar aldar gamall, var Jósef hylltur af
fjölmörgum nemendum sínum, fyrir mikil og margþætt störf,
sem hann hafði unnið fyrir Hólaskóla, hérað sitt og alþjóð.
Hann varð og heiðursfélagi í Búnaðarfélagi íslands og Búnað-
arfélagi Viðvíkurhrepps.
Jósef var maður heilsuhraustur mestan hluta æfinnar og sí-
starfandi. Hann hafði eflt þrek sitt, að kalla mátti, jöfnum
höndum bæði við andleg og verkleg störf. Hann var bindindis-
maður, hófsamur og svo skaprór að af bar. Ógjarnan vildi hann