Búfræðingurinn - 01.01.1948, Blaðsíða 25
BÚI'RÆÐINGURINN
Zi
lifað liér á landi, fremur en annars staðar, enda hefur kýrin
hlotið réttnefnið fóstra þjóðanna.
Án íslenzka hestsins var landið óbyggilegt, því að hann var
öldum saman eina samgöngutæki þjóðarinnar á landi og reynd-
ist ávallt jafn vel, hvort sem honum var riðið eða á honuinborið
um holt eða jnóa, lnaun og klungur, eða yfir stórfljót og aðrar
ófærur.
íslenzki hesturinn hefur líka hlotið réttnefnið þarfasti þjónn-
inn. En ávallt, og þó einkum þegar skórinn kreppti mest að
þjóðinni, reyndist sauðféð öruggasta hjálparhellan, enda mun
Island frá því skömrnu eftir að land byggðist, til þessa dags hafa
verið mesta sauðfjárræktarland álfunnar miðað við fólksfjölda
og nú er það þriðja eða fjórða mesta sauðfjárræktarland heims-
ins miðað við íbúatölu.
Engin menningarþjóð mun hafa nytjað afurðir sauðkind-
arinnar betur en íslendingar gerðu fram á síðustu ár. Hvert
tangur og tetur sem sauðkindin gaf af sér var notað. Kjötið,
blóðið, haus, fætur og öll innýfli var notað til manneldis, skinn-
in í skó og hlífðarföt, ullin til klæða og taðið til eldsneytis eftir
að skógar minnkuðu. Hið forna spakmæli „sveltur sauðlaust
bú“ sýnir hve sauðfjárræktin liefur verið þýðingarmikill þátt-
ur í íslenzku atvinnulífi.
Um síðustu aldamót er talið að 58,6% af íslenzku þjóðinni,
eða um 46 þúsund manns hafi stundað landbúnað. Síðan hafa
átt sér stað mikil straumhvörf í íslenzku atvinnulífi. Með efl-
ingu sjávarútvegs og iðnaðar hér á landi í kaupstöðum og þorp-
um við sjóinn fluttist fólk í stórum stíl frá landbúnaðarstörf-
um í kaupstaðina.
Kaupstaðir og sjóþorp tóku ekki aðeins við allri fjölgun
þjóðarinnar, heldur hefur fólki við landbúnaðarstörf fækkað
úr 46 þúsundum 1901 niður í 37.000, 1945. Það ár er talið að
aðeins 30,6% af þjóðinni vinni við landbúnað.
Miðað við þessar tölur hefði verið eðlilegt að landbúnaðar-
framleiðslan hefði minnkað síðan um aldamót. En svo er ekki,
heldur liið gagnstæða. Kindakjötsframleiðslan hefur vaxið úr
3,255 smálestum 1901, í 7,714 smálestir 1945, eða meira en tvö-
faldast. Hæzt hefur hún orðið 1940, 8,750 smálestir. Kinda-