Búfræðingurinn - 01.01.1948, Blaðsíða 28
26
BÚFRÆfilNGURlNN
urbú, en með afurðasölulögunum 1935 var stigið stærsta sporið
í mjólkursölumálunum.
Það ár var Mjólkursamsalan í Reykjavík stofnuð. Nú hefur
hún reist veglegt stórhýsi í Reykjavík fyrir starfsemi sína. En
nokkuð liefur dregizt, að unnt hafi verið að útvega allar þær
vélar, sem Nýja Mjólkurstöðin þarf, en úr því er nú að rætast.
Nú er svo komið málum að bændur framleiða næga neyzlu-
mjólk fyrir því nær alla kaupstaði landsins, en nokkuð vantar
þó á að einstöku kaupstaðir og kauptún fái næga mjólk, sökum
erfiðra skilyrða til búskapar í nágrenni þeirra.
í mjólkurbúum landsins eru ýmsar vörur unnar úr mjólk-
inni með nýtízku aðferðum, svo sem skyr, ostar og smjör. Þess-
ar vörur eru fullkomlega sambærilegar að gæðum við sömu
vörutegundir hjá öðrum menningarþjóðum.
íslenzka þjóðin hefur aukið mjög neyzlu landbúnaðarvara
síðustu áratugina. Að vísu hefur mannfjöldi í landinu vaxið
síðan um aldamót úr 77,292 árið 1901, í 130,356 árið 1945, en
neyzla landbúnaðarvara hefur vaxið hlutfallslega mun meira.
Neyzla kjöts var árið 1901, 2,684 smálestir en 1945, 10,400
smálestir eða fjórum sinnum meiri en 1901.
Neyzla mjólkur hefur á sama tíma aukizt úr 38,000 smálest-
um í 80,000 smálestir, eða meira en tvöfaldazt.
Þessi mikla aukning á neyzlu búfjárafurða í landinu síðan
um síðustu aldamót ber glöggan vott um velmegun þjóðarinn-
ar, því að kjöt og mjólkurvörur eru hollustu og beztu matvörur,
sem fólk á völ á, en all dýrar, og því geta ekki aðrar þjóðir veitt
sér þessar vörur í ríkum mæli, en þær sem búa við hagsæld.
Með aukinni vísindalegri þekkingu í erfðafræði á nítjándu
öld vaknaði áhugi á búfjáfkynbótum hjá nágrannaþjóðum
okkar.
Þeir straumar bárust hingað til lands á síðustu áratugum
aldarinnar. Var þá um það deilt, hvort kynbæta ætti íslenzkt
búfé með því að flytja kynbótagripi til landsins frá öðrum
löndum, eða rækta okkar innlenda búfé með úrvali. Síðari
stefnan sigraði um sinn, að líkindum mest fyrir áður fengna
illa reynslu af innflutningi sauðfjár, þegar fjárkláðinn fluttist
til landsins tvívegis með erlendum hrútum.