Búfræðingurinn - 01.01.1948, Blaðsíða 48
Útungun og uppeldi kjúklinga
(Framhald af grein í Búfræðingnum 1946.)
3. Uppeldið.
Eins og að framan getur, verður það að teljast góður árangur
af útungun í 200#) eggja vél, ef um 150 egg ungast út. En því
miður verður það oft minna.
Eftir að ungarnir eru skriðnir úr egginu, eru þeir látnir vera
í vélinni í einn til tvo sólarhringa. Þegar þeir eru teknir úr vél-
inni, þurfa þeir að vera orðnir hreinir, vel þurrir og gljáandi.
Séu þeir blautir, þegar þeir eru teknir út, er hætt við að þeir
ofkælist og bíði varanlegt tjón af, eða jafnvel drepist. Þegar
ungarnir skríða úr egginu, hafa þeir í sér nokkra forðanæringu,
sem endist þeim fyrstu tvo sólarhringana.
Um leið og ungarnir eru teknir úr útungunarvélinni, eru
þeir settir í eða undir gerfimæður. Af þeim eru notaðar margar
gerðir. Skal tveimur stuttlega lýst, hettumóður og kassamóður.
Hettumóðir er gerð úr toppmyndaðri blikkhettu, sem stend-
ur á fótum, 12—14 cm yfir jörð. Við ytri röndina að ofan er
festur renningur úr bómullartaui. í neðri rönd renningsins
eru klipptar rifur, með hæfilegu millibili. Þær ná upp í miðj-
an renninginn, eða vel það. Er renningurinn þannig sundur-
skorinn til þess, að ungarnir geti hæglega komist út og inn,
eftir því, sem þeir þurfa. Hettumóðirin er Iiituð upp með raf-
magni eða olíulampa, kolum eða jafnvel vatnsmiðstöð. Þægi-
legast og bezt er að nota rafmagn, þar sem því veður við komið.
Hitaáhaldið er þá vanalega í toppi hettunnar. Það er þannig
' ¥
*) í BúfræSingnum, bls. 98, 1946, 4. línu að neðan, er meinleg prent-
villa, „20 ungar", en á að vera 200 ungar.