Búfræðingurinn - 01.01.1948, Blaðsíða 60
58
BÚFRÆÐINGURINN
Hér hófst kynning okkar við Borgfirðinga, og hingað komu
þeir Steingrímur Steinþórsson búnaðarmálastjóri og Skagfirð-
ingurinn Gísli Jónasson kennari frá Hróarsdal, formaður Skag-
firðingafélagsins í Reykjavík.
Allmargir Borgfirðingar voru hingað komnir, til að fagna
okkur, og hófust brátt samræður með þeim og hinum eldri
mönnum úr okkar hóp. En allmjög hlaut ég, bæði hér og víðar
í þessari ferð, að gjalda æskii minnar, því að engan þekkti ég af
sunnanmönnum, nema þingmann okkar Skagfirðinga, Stein-
grím Steinþórsson búnaðarmálastjóra. Þó vissi ég síðar, að hér
voru staddir nokkrir af þjóðkunnum bændum Borgfirðinga.
Ekki varð dvölin löng að Hreðavatni, en þó voru þar fluttar
ræður nokkrar. Fyrstur tók til máls bóndi úr flokki Borgfirð-
inga. Sá var mikill vexti, djarfinannlegur og fríður sýnum. Þó
var hann nokkuð við aldur og hvítur fyrir hærum. Þessi rnaður
var Guðmundur Jónsson frá Hvítárbakka, formaður Búnaðar-
sambands Borgfirðinga. Guðmundur bauð okkur velkomna til
Borgarfjarðar í nafni Búnaðarsambandsins og allra Borgfirð-
inga. Kvað hann okkur skyldu vera í boði þeirra um daginn, og
gæfist þá kostur þess að sjá helztu menntasetur og aðra fræga og
fagra staði héraðsins, sem á vegi okkar kynnu að verða. Þá töl-
uðu þeir Steingrímur og Gísli. Þeir ræddu nokkuð um för okk-
ar, gátu um gildi og nauðsyn bændaferða, óskuðu okkur góðs
gengis á ferðalaginu og allra heilla. Jón á Reynistað hafði orð
fyrir Skagfirðingum. Þakkaði hann ræðurnar og boð þeirra
Borgfirðinga.
Sætum var nú skipað að nýju í bílunum, með þeim hætti, að
sunnanmenn settust nú meðal okkar í hverjum bíl og höfðu
leiðsögu um héraðið. Var fræðsla þeirra hin ánægjulegasta.
Veður var bjart og fagurt þennan dag allan, svo að héraðið naut
sín ágætlega. Mátti svo að orði kveða, að skógarnir, vötnin,
mannvirki hvers konar, tún og grænar grundir brostu við okk-
ur af hverju leiti í dýrð sumarsins. Fjallahringurinn er víður
og fagur. Björt sjávarsýn og Ægir eggjandi, eins og í Skagafirði.
Ekki var þess kostur að koma út til Borgar, en við sjáum Skalla-
grím í anda, bóndann haga og burðagilda, sem fyrstur skynjaði
kosti landsins af búmannlegu hyggjuviti, svo að ekki hefur síð-