Búfræðingurinn - 01.01.1948, Blaðsíða 96
94
BÚFRÆÐINGURINN
a b c
Ýmiss konar fyrirkomulag við loftrásir mjólkurhúsanna.
kyrrt er veður. Þegar svo hagar til má nokkuð hjálpa sér með
því að opna glugga, en þó er ennþá betra að hafa sérstaka vind-
snældu, búa til loftsúg, eins og víða tíðkast nú, t. d. í samkomu-
húsum. Ekki þurfa slíkar snældur að vera stórar, en þær þurfa
rafmagn og kemur þetta því ekki að gagni nema þar sem raf-
lýst er.
Ef túða er höfð upp úr þakinu, er bezt að hún standi lóðrétt
upp, en sé ekki brotin eða beygð til annarrar hliðar. Sé túða
hins vegar ekki notuð, en loftgöt höfð á veggjum, verða þau að
vera á tveim andstæðum veggjum. Þetta er vel hægt ef mjólkur-
húsið er ekki sambyggt fjósi eða öðrum húsum. Sé mjólkurhús-
ið hins vegar sambyggt öðrum húsum, er oft erfitt að koma
þessu fyrir og verður þá að nota túðu, enda er hún að flestu
betri.
Þess skal að jafnaði gætt, eftir því sem tök eru á, að lítið sé af
flugurn í sjálfu mjólkurhúsinu. Ef loftgöt eru á veggjum, loft-
túða upp úr þakinu, eða ef gert er ráð fyrir að hafa gluggana
opna, verður að hafa flugnanet, til þess að hindra flugurnar í
því að komast inn. Einnig er gott að hafa gluggarúðurnar kalk-
aðar að innanverðu. Annars virðist svo sem erfitt sé að vinna
bug á flugunum. Þær koma undarlega fljótt, hversu vel sem
þrifið er og til hvaða ráða sem gripið er. Hesthúshaugur er til-
valinn og illræmdur klakstaður fyrir flugurnar og þess vegna
má hann ekki vera í námunda við mjólkurhúsið eða fjósið.
í verzlunum fást nú ýms efni, sem verja flugum og er sjálf-
sagt fyrir bændur að reyna þau, því að gagn gera þau, en aðab