Búfræðingurinn - 01.01.1948, Blaðsíða 98
96
BÚFRÆÐINGURINN
stærð. Séu búin hins vegar stærri, þurfa rajólkurhúsin að vera
til muna stærri.
Hinn danski fræðimaður, L. Hansen Larsen, telur í bók
sinni, Nye Danske Landbrugsbygninger, að stærð þeirra þurfi
að vera sem hér segir:
Bú með Bú með
15 kúm 15 kúm
I. Dælu- og vélarherbergi ....................... 2 m2 3 m'
II. Slunar- og kæliherbergi ....................... 2 m! 5 m’
Kæliþróin:
a. Lengd, ef breidd hennar er 45 cm .. 1.8 m 6.4 m
b. Lengd, ef breidd hennar er 90 cm .. 0.9 m 3.2 m
III. Þvottaherbergi ............................. 4—6 m' 6—12 ms
1. Veggpláss fyrir mjaltafötur:
a. Breidd ............................... 110 cm 170 cm
b. Þykkt.................................. 35 cm 35 cm
c. Hæð .................................. 180 cm 180 cm
2. Tala dauðhreinsara (Desinfektionsappa-
rat) ................................. • 1 2
a. Breidd ................................ 35 cm 80 cm
b. Þykkt.................................. 35 cm 35 cm
c. Hæð .................................. 180 cm 180 cm
Gólfflötur allra herbergjanna.............. 8—10 m2 14—20 m2
Tala Mjólkurbrúsa í kælingu ............ 4—6 10—15
Tala vélfatna........................... 2 2
4. Kceliþróin og ýmiss konar kœliútbúnaður.
Sú stærð af kæliþróm, sem hér að framan er talin hæfileg,
byggist eingöngu á því, að notað sé rennandi vatn til kælingar
og að mjólkin sé send til mjólkurbúsins á hverjum degi. Ef ekki
eru tök á því að hafa rennandi vatn, verður þróin að vera stærri,
eða svo stór að hún taki, að minnsta kosti, þrisvar sinnum meira
vatn en mjólkurmagn það er, sem þarf að kæla. Ef kæla þarf t.
d. mjólk í tveim 50 lítra brúsum, þarf að vera yfir 300 ltr. af
vatni í þrónni.
Ef ekki er flutt til mjólkurbúsins á degi hverjum, verður að
miða stærð þróarinnar við þá tölu mjólkurbrúsa, sem mest get-
ur orðið. Stærð hvers mjólkurbrúsa er sem hér segir:
Stærð mjólkurbrúsanna Hæð alls Hæð að hálsi Þvermál
40 lítrar 60—62 ciu 50—52 cm 35 cm
50 lítrar 64—69 cm 53—59 cm 37—38 cm