Búfræðingurinn - 01.01.1948, Blaðsíða 118
116
BÚFRÆÐINGURINN
alveg rokinn úr því, ef í því hefur hitnað. Þetta gefur öryggi
og sparar mikla vinnu á óþurrkasumrum eins og 1945; urðu
þá engir erfiðleikar á Þorvaldseyri, og öll hey náðust nálega
græn og með beztu verkun.
Sumarið 1945 unnu að heyskap á Þorvaldseyri, auk lijón-
anna, sem eru nær sjötugu, einn fullgildur karlmaður, tveir
menn ófullvinnandi vegna lasleika, tvær fullgildar kaupakonur
og tveir unglingar innan við fermingu, í bænum vann konan
með aðstoð annarrar stúlkunnar. Að heyskap gengu því tvær
fullvinnandi manneskjur með aðstoð barna og veikburða fólks.
Borðað er þrímælt á Þorvaldseyri. Eftir fótaferð er drukkið
kaffi. Kl. 9—10 er borðuð skyrhræra og nýtt slátur úr frystihús-
inu. Kl. 12 er drukkið kaffi, en kl. 2—3 er borðaður bádegis-
verður, og er þá neytt kjöts eða fisks úr frosti ásamt garð-
ávöxtum og eftirmat. Kl. 5—0 er drukkið kaffi og kvöldverðar
er neytt að lokinni vinnu. Yfir sumarið er vinnutími frá kl. 7 á
morgnana til kl. 9 á kvöldin, en frá þessu dragast 3—4 thnar
vegna máltíða, eftir því hvernig á stendur. Vinnutíminn er því
alls 10—11 stundir.
Kaup kaupakvenna var sumarið 1945 um 800 kr. á mánuði,
en kaupamanna 1000 kr. auk fæðis, þjónustu og húsnæðis. Fólk-
ið hefur frí á sunnudögum, nema útlit sé fyrir góðan þurrk, þá
er unnið við heyskap og er greitt fyrir það aukalega.
Fóður kýrinnar yfir veturinn er sem svarar rúmlega 40 hest-
burðum af töðu, en af því er um þriðjungur vothev, auk þess
er hverri mjólkurkú gefið rúmlega 100 kg. af fóðurbæti, mest
mais og síldarmjöl. Kindinni er gefið rúmlega 2 hestburðir af
engjaheyi og af því er um 1/4 hluti vothey. Auk þess er hverri
kind gefið um 5 kg. af síldarmjöli yfir veturinn. Hrossum er
gefið bæði þurrhey og vothey með beitinni.
Ólafur segir, að lágmarkskrafa sín sé sú, að meðalnytin í fjós-
inu sé ekki undir 3000 lítrum, að kvígum meðtöldum. Meðal-
nyt 5 síðustu ára er dálítið yfir J^essu marki. Feiti mjólkurinnar
er venjulega tæpl. 4%.
Heildarframleiðsla Þorvaldseyrarbúsins er um 24,000 lítrar
af mjólk, 2000 kg. af kindakjöti, um 200 kg. af ull, 300 kg. af