Búfræðingurinn - 01.01.1948, Blaðsíða 137
Mikils þarf búið við
Kvæði í þuluformi, sem eignað er séra Stefáni Ólafssyni, og
ort er undir nafni ungs manns, byrjar á þessa leið:
Ég hef lyst jafnvel að reisa bú,
en ég þarf fyrst: jörð, stúlku, hest og kú,
kistur, fötur, kollur, trog“ o. s. frv.
Bóndaefnið gerir það upp við sig, hvers sér sé vant til þessa.
Hann kemst að hinni sömu niðurstöðu og Sighvatur Sturluson
forðum að, „mikils þarf búið við“.
Fæstir, sem hæst tala um flótta þjóðarinnar frá framleiðslu,
gera sér fulla grein fyrir, hve mikils þarf við í þessu eini, þegar
landbúnaður á í hlut. Ég heyrði nýlega gagnfróðan mann gera
sér grein fyrir, — í fáum dráttum þó, — hvers við þyrfti til þess
að reka bú, er viðunandi mætti telja til þess, að skapa þeirri
fjölskyldu, er bviið ræki, mannsæmandi skilyrði. Hann taldi,
að til þess þyrfti annað hvort 12—16 kýr fullmjólka eða 160—
200 ær. Hér skal engin tilraun gerð til að sanna eða ósanna rétt-
mæti þessarar kröfu. Um það má að sjálfsögðu deila, hve stór
búin skuli vera, en sú deila skal hér leidd hjá. Hitt er mér meir
í hug að gera þess nokkra grein, livað til þess þarf að stofna slíkt
bú nú.
Um líkt leyti og ég heyrð'i liin áðurnefndu ummæli, heyrði
ég annan fróðleiksmann færa rök að því, að 20 kv'ia fjós mundi
kosta allt að 160 þús. krónum.
Nú er þess að gæta, að 20 kúa fjós, þ. e. 20 fullgildir básar,
munu tæpast skila meiru en 16 kúm fullmjólka, þegar mæla
skal viðhaldið og vanliöldin. Fyrir 16 kúa bú mun því í
reyndinni þurfa 20 kúa fjós. í áætlun þeirri, sem hér er nefnd,