Búfræðingurinn - 01.01.1948, Blaðsíða 146
144
BÚFRÆÐINGURINN
Meðgöngutími dagar: 140 141 142 143 144 145 146 147 148
Alls
Ærtala, einlembdar: 1 5 17 26 38 21 9 3 3 = 123
Ærtala, tvílembdar: 3 11 30 45 31 23 6 3 1 = 153
Meðalmeðgöngutími einlembdra er 143.8 dagar, en tví-
lembdra 143.3 dagar. Meðaltal fyrir þær allar er 143.6 dagar.
Það hefur verið skoðun fjármanna, að tvílembdar ær gangi
skemur með en einlembdar. Munurinn hjá mér er að vísu lítill,
þ. e. hálfur dagur, en getur þó tæpast verið tilviljun ein, heldur
staðfestir hann þetta álit fjármanna. Út frá jressum athugunum
vildi ég álíta meðalmeðgöngutíma íslenzku ánna 143þ2 dag, —
eða 20 og hálfa viku.
Jónas Pétursson frá Hranastöðum.
Góðar heygeymslur.
Eftir því sem ræktun vex og heymagnið, eykst um leið þörfin
fyrir góðar heygeymslur, enda er nú á seinni árum byggt mikið
af heyhlöðum, en lakast er að þær verða dýrar, ekki sízt ef
kaupa þarf nær alla vinnu.
Þegar byggja skal heyhlöðu verða menn að hafa það hugfast,
að jiað hey, sem þær eiga að geyma er mjög mikið verðmæti, og
því nauðsynlegt að þær séu Jrannig gerðar, að það skemmist
ekki í þeim. Algengast mun nú að byggja hlöðu úr steinsteypu
og með járnþaki.
Eins og áður er sagt verða þessar hlöður dýrar og auk þess
alls ekki gallalausar.
Einfaldir steinveggir vilja blotna í gegn og liéla innan og
hey fúlnar því við þá. Yfirborð heysins í þessum ltlöðum er
ævinlega meir og minna skemmt af myglu og bleytu, sem stafar
af því að allur suddi, sem sezt í jrakið fellur ofan í heyið. Úr
jiessu mætti kannske bæta með því að hafa torfstopp undir
járninu eða lítil vindaugu á stöfnum, en varla mun úr Jressu
bætt nema með auknum byggingarkostnaði.
Nú á þessum síðustu árum hafa margir bændur byggt sér
hlöður úr hermannaskálum og þá oftast steypt veggi undir Jrá.
Þessir skálar hafa reynzt vel sem heyhlöður og lausir við þann