Búfræðingurinn - 01.01.1951, Side 8

Búfræðingurinn - 01.01.1951, Side 8
6 BÚFKÆÐINGUIUNN breiðir að ofan og 123 cm að neðan. Voru þetta taldir löglegir garðar. Má gera ráð fyrir, að varla hafi verið í venjulegu dagsverki meira en 3—5 lengdarmetrar. Á þjóðveldistímanum var það talinn sjálfsagður hlutur að leggja mikið kapp á hvers konar garðahleðslu, og bendir allt til þess, að við- hald þeirra hafi einnig verið í góðu lagi fram eftir þjóðveldistímanum. í Jónsbók (lög frá 1281) var lögleitt, að hver húandi skyldi vera skyldur að gera garð um tún sitt. Ástæða er þó ekki til að ætla, að þessi ákvæði hafi verið sett í lög vegna þess, að áhugi bænda fyrir garðahleðslu hafi verið farinn að minnka, heldur hins, að þessi ó- skráðu lög skyldu rituð í Jónsbók eins og önnur lög. Eftir lok þjóðveldistímans fer þessum þætti búmenningar að hnigna. Á 14. öld er hætt að gera nýja úthagagarða. Viðhald eldri garða verð- ur lélegt, og viðhald landamerkjagarða hættir með öllu. Á 15., 16., 17. og 18. öld verður þessi hnignun algjör, svo að varla stendur nokkur garður uppi. Á 17. öld sjást sums staðar merki tveggja túngarða, ann- ars utar, lægri og eldri, liins innar, nýlegri og hærri. Var þó víðast kom- in mikil órækt inn fyrir innri garðinn. Talið er, að á síðari hluta 18. aldar hafi mátt fara sýslu úr sýslu án þess, að sæist fullkominn garður um nokkurt tún. 1853 er fyrst getið um túngarða í skýrslum. Þetta ár eru mældir 73,6 km af görðum (sjá töflu II). Munu þeir sennilega gerðir á árunum frá 1840 til 1853. En 1853 er fyrsta árið, sem mæling fer fram. Á 19. öldinni færist endurbygging garða nokkuð í vöxt, og einnig hefst ein- hver nýbygging, einkum síðari hluta aldarinnar. Samkvæmt skýrslum eru árlega gerðir 15—45 km af nýjum görðum. Eru þar með taldir vörzluskurðir. Garðahleðsla nær hámarki á árunum 1905—1909, eru þá árlega að meðaltali gerðir 92 km. Fram í lok 19. aldar og jafnvel fram yfir aldamót má telja, að skiln- ingur margra búenda á gildi og nytsemi girðinga hafi verið nokkuð takmarkaður. Það var talið sjálfsagt að eyða fjölda dagsverka í það að vaka yfir túnum og engjum á vorin og sumrin í stað þess að hlaða tún- garða. Ýmsum áhugamönnum verður þá nokkuð ágengt um garða- hleðslu. Alþingi er einnig að nokkru leyti ljóst gildi girðinga. í reglum frá Alþingi 1893 er sagt til um, hversu garðar skuli vera gerðir, en hins vegar er ekki gert ráð fyrir vírgirðingum, heldur eingöngu girð- ingum úr innlendu efni.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170

x

Búfræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búfræðingurinn
https://timarit.is/publication/696

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.