Búfræðingurinn - 01.01.1951, Blaðsíða 14
12
BÚFRÆÐINGURINN
d. Stœrð girðingarstaura. Þeir þurfa yfirleitt að vera 5—6 feta Iang-
ir, eða 153—183 cm. Hæð girðingar ræður þó hér nokkru um. í jörð
þarf að grafa þá 60—90 cm, eða 2—3 fet. Aflstaura þarf að grafa
dýpra, eða um 1 m. Lengd og gildleiki þeirra þarf þá að vera meiri.
Gildleiki venjulegra tréstaura þarf að vera sem svarar 3X3 þumlungar
eða 8X3 cm, en aflstólpar mun efnismeiri.
3. Vír.
a. Gaddavír. Hann er gerður úr tveiin galvaniseruðuin járnþráðurn
af mismunandi þykkt. Um annan þráðinn er vafið vír af sörnu þykkt
með 7,5 til 15 cm millibili. Er hann skáklipptur þannig, að út frá þess-
um vafningum eru 4 oddar (stundum 2) eða gaddar, og þar af nafnið
gaddavír, kallast hann þá fjóryddur gaddavír. Járnþræðirnir eru svo
snúnir saman, svo að gaddarnir eru klemmdir á milli þráðanna. Ef vír-
þykkt er 2,6 mm bæði í þráðum og göddum, er í 100 kg því sem næst
930 m. Af gaddavír eru til ýmsar gerðir. Er hann tölusettur, og er vír-
inn því gildari, sem hann hefur lægri einkennistölu. í einni 50 kg rúllu
af gaddavír nr. 14 eru 640—700 m. 1 50 kg rúllu af nr. 121/2 eru 420—
460 m. Gunnlaugur Kristmundsson telur nr. 121/2 bezta vírinn, þar sem
bilið milli gadda er 8—10 cm (3—4 þumlungar). Aðalamismunur á
gaddavír er því fólginn i þvermáli hans. Ekki er fullt samræmi um ein-
kennistölur gaddavírs í hinurn ýmsu framleiðslulöndum. Algengastur
er enskur mælikvarði (Burmingham). Eru númer og vírþykkt þessi:
Nr. 8 4.19 mm Nr. 11 3.04 mm Nr. 14 2.04 mm
— 9 3.75 — — 12 2.76 — — 15 1.82 —
— 10 3.40 — — 13 2.41 — — 16 1.65 —
Það, sem hefur áhrif á styrkleika og endingu gaddavírs, er einkum
þykkt vírsins, þanþol og galvanisering hans. Húðun vírsins er mikil-
vægasta atriðið, og fer ending hans mjög eftir húðuninni. Óhúðaður
vír endist afar illa, því að raki loftsins og súrefni þess ganga í samband
við járnið og mynda svokallað ryð, sem efnafræðilega séð er ferrílút-
ur (Fe(OH)3). Með þunnri sinkhúð (Zn) er hægt að verja járnþráð
gegn áhrifum lofts og raka. Vír er sinkhúðaður ýmist á þann hátt, að
hinum tilbúna gaddavír er dýft niður í brætt sink (bræðslumark Zn er
419° C), eða með rafaðgreiningu sinkupplausnar, er þá vírnum komið
fyrir við neikvæða skautið. í raun og veru þolir sink illa áhrif raka og