Búfræðingurinn - 01.01.1951, Side 18
16
I3ÚFRÆÐINGURINN
b. Torj- og grjótgarðar. Svo kallast garðar, sem hlaðnir eru úr torfi
og grjóti. Eru þeir tvíhlaðnir. Annað lagið er úr torfi, en hitt úr grjóti.
Geta þetta verið allvaranlegar girðingar. Stærð er lik og tvíhlaðinna
grjótgarða. Dagsverkið var talið 3 faðmar (6 m). Ending 20—30 ár.
c. Torfgarðar. Þeir voru algengustu girðingar, þar til er vírgirðingar
komu til sögunnar. Þeir eru ýmist ein- eða tvíhlaðnir, hlaðnir með
nokkrum flóa, ýmist úr sniddu eða hnausum (kökkum), úr mýrartorfi
eða grasrótarjarðvegi. Hnausarnir þurfa að vera lausir við sandlög.
Vel hlaðnir torfveggir úr góðu efni geta staðið mjög lengi (shr. torf-
veggi gömlu bæjanna). Torfgarðar síga allmikið, og þarf því að gera
ráð fyrir því við hleðslu þeirra í fyrstu. Stærð sé 1—1,2 m að breidd
að neðan, 1,5 m háir og 0,3 m að ofan. Hæðin á fullsignum garði þarf
að vera minnst 1,25 m. 1 dagsverkið var lagt 2—3 faðmar. Ending
þeirra er um 20 ár.
d. Vörzluskurðir. Hér er átt við hvers konar skurði, sem eru það
djúpir, að þeir varni því, að búpeningur komist yfir þá. Margir skurð-
gröfuskurðir eru hin bezta vörn. Þegar dýpt skurðs er 1,8 m eða meira
og breiddin 3—4 m, er hann jafnframt hin fullkomnasta girðing. Það
er því oft hægt að leggja opna vélgrafna skurði þannig, að þeir komi
að fullum notum sem girðing, t. d. á milli jarða, um leið og þeir eru
framræsluskurðir. Séu skurðirnir grynnri en fyrr er greint, getur verið
ódýrt og hagkvæmt að setja einn eða fleiri vírstrengi á aðra brún
skurðsins, þá er inn að ræktunarlandi veit.
2. Torj- og grjótgirðingar undir vír.
Hér er um að ræða girðingar, þar sem hlaðinn er fyrst garður úr
torfi, grjóti eða hvoru tveggja. Kostir þessara girðinga eru einkum
þeir, að vír má spara í 1—3 strengi og komast af með miklu
efnisminni staura. Heppilegast mun vera að hafa undirhleðsluna um
75 cm háa, breidd að neðan 1,0 m og að ofan 0,3 m. A slíkan garð er
hæfilegt að setja tvo strengi. Á dag getur duglegur maður hlaðið 30—
40 m langan garð. Viðhald á þessum girðingum verður alltaf töluvert,
því að grannir tréstaurar endast stutt, garðurinn missígur og verður
þá léleg vörn nema með árlegum viðgerðum.
3. Vírgirðingar.
Svo kallast girðingar, sem eingöngu eru gerðar úr vír. Hér verður