Búfræðingurinn - 01.01.1951, Side 23
BÚFRÆÐINGURINN
21
8), litlu lengri en netið, eru settir sinn hvorum megin við netið og þeir
boltaðir eða þvingaðir saman, svo að netið sé fast klemmt á milli
þeirra. í plankana má svo tengja kaðla eða víra við talíur, sem notaðar
eru við strenginguna. A þenna hátt fást allir þættir netsins jafnt
strengdir. Er svo netið fest á staurana. Ekki er
nauðsynlegt að festa alla þræði þess á hvern
staur. Er nóg að festa annan hvern milliþráð á
hvern staur, þannig að hver milliþráður sé fest-
ur á annna hvern staur. Þegar net liggur yfir
miðshæðótt land, getur skapazt misstrenging í
netinu. Má úr þessu bæta með því að strengja
meira þá hliðina, sem lengri þarf að vera.
Neðsti og efsti þráðurinn er oft smábugðóttur,
svo að á þeim getur teygzt lítið eitt. Einnig er
hægt að gera smáhlykki á þá strengi, er slakari
eru, t. d. með töng. Þess verður þó að gæta, að
galvaniseringin skemmist ekki. Neðsti þáttur 5
möskva vírnets á að vera alveg niðri við undirlagið, eftir að sléttað
hefur verið undir. Er þetta nauðsynlegt, því að sauðfé reynir alltaf að
smeygja hausnum undir. Heppnist það, er nokkur hætta á, að kindin
geti smogið undir, því að vírnetið festist ekki í ullinni, eins og gadda-
vírinn gerir.
c. Girðingar úr sléttum vír. Sléttur vír er mjög lítið notaður ein-
göngu í girðingar nema þá meðfram heimreiðum. Hins vegar er hann
hafður með vírneti og gaddavír, einkanlega fyrir ofan vírnet, og má
segja, að þá geti hann komið að líkum notum og gaddavír. En varnar-
máttur girðingarinnar getur þó varla talizt jafnmikill. Um girðingar
úr sléttum vír verður ekki rætt hér frekar.
4. Rajmagnsgirðingar.
Svo kallast girðingar, þar sem rafstraumur er leiddur í gegnum vír.
Hér á landi hafa rafmagnsgirðingar ekki rutt sér mikið til rúms enn-
þá, enda er hér fyrst og fremst um stórgripagirðingar að ræða. En girð-
mgar af þessu tagi hafa náð allmikilli útbreiðslu erlendis og þá einkum
til vörzlu stórgripa og þá sem færanlegar girðingar. Hér verður aðeins
fýst rafgirðingunni „ST0D“, er S. í. S. hefur flutt inn. Nota má ýmist
gaddavír eða sléttan vír, og er sá síðarnefndi öllu hentugri. Oftast er