Búfræðingurinn - 01.01.1951, Blaðsíða 24
22
BÚFRÆÐINGURINN
notaÖur aöeins einn strengur, stundum tveir, en sjaldan fleiri. Vírinn
er einangraður frá staurunum með postulínskúlum, sem festar eru á
staurana ýmist með nöglum eða skrúfum, og er vírinn síðan festur á
þessa einangrara með þar til gerðum stálvírslykkjum, en einnig má
festa hann með hvaða vír, sem er, t. d. 2 mm vír. Þegar ekki eru hafðir
nema 1—2 strengir, geta staurarnir verið miklu grennri en venjulegir
staurar og hil milli þeirra nokkru meira. Þá þarf
ekki að reka nema lítið eitt niður, og er þetta
mjög hentugt, þegar um færigirðingar er að
ræða. Notkun járnstaura er ekki heppileg. Raf-
straumurinn er fenginn frá rafhlöðu, sem komið
er fyrir í járnkassa ásamt straumrofa, er rýfur
strauminn 40—60 sinnum á mínútu. Járnkassa
þennan má spetina á einn staur girðingarinnar.
Spenna rafhlöðunnar er venjulega 6 volt. Er því
straumurinn algjörlega hættulaus mönnum og
skepnum, en gefur hins vegar allmikið högg, ef
vírinn er snertur. Verður búfé mjög hverft við
straum þenna og forðast að koma nærri girð-
ingunni. í þessu liggur gildi girðingarinnar sem
varnargirðingar. Hver rafhlaða á að geta gefið
10. mynd. straum í 5—15 km langa girðingu og á að end-
Rafmagnsgirðing. ast í 6 mánuði. Straumnotkun er mjög lítil, þar
sem straumurinn er rofinn með jöfnu millibili,
og er sá útbúnaður algerlega sjálfvirkur. Með þessum girðingum fylgir
einnig einangrað handfang og hliðgormur. Hverju tæki fylgja 50
postulínseinangrarar. Verðið hefur verið um kr. 350.00.
i
5. Girðingar úr tré, járni, steinsteypu o. jl.
Girðingar af þessu tagi verða ekki ræddar hér, vegna þess að gildi
þeirra er fyrst og fremst bundið við skrúðgarða, lóðir og þ.l. Væri þó
ekki vanþörf á því að ræða slíkar girðingar bæði frá hagnýtu og fagur-
fræðilegu sjónarmiði, því að oft og tíðum eru girðingar um skrúðgarða
bæði ljótar, óhentugar og dýrar, þótt margar undantekningar séu frá því,
einkum í hinum stærri bæjum (s. s. Reykjavík og Akureyri).
6. Limgirðingar.
Svo kallast girðingar úr lifandi trjám eða runnum. Erlendis er þessi