Búfræðingurinn - 01.01.1951, Page 29
BÚFRÆÐINGURINN
27
3. Illiðlœsingar og hjarir.
Áríðandi er að hafa hjarafestingar traustar, t. d. festa hjarirnar
(lamirnar) með boltum á trégrindur og sjóða þær við rörgrindur (sjá
myndir 14, 15 og 16). Kengina
þarf að steypa í steypta stólpa, en
bolta þá gegnum tréstaura. Hjarir
og læsingar þurfa að vera þannig,
að grindin geti opnazt lil beggja
hliða.
Um læsingar hliða er ekki
gott að gefa algildar reglur, enda
um margvíslegar gerðir að ræða.
Þær kröfur verður að gera til
hliðlæsinga, að þær leyfi, að hægt
sé að opna grindurnar til beggja
Miða, ef um stærri hliðgrindur er
að ræða, — að þær séu öruggar,
en ekki dýrar. Venjulegar hurða-
læsingar koma ekki annars staðar
til greina en þar, sem um litlar
18. mynd. Sjáljlokandi lœsing á hliðstaur.
grindur er að ræða. Margs konar fjaðralæsingar eru notaðar á stærri
hliðgrindur. Ef tvær grindur eru í sama hliði, má loka þeim með
járnslá. (Sjá 15. mynd).
VI. Hvað kosta girðingar?
Hér verður ekki gerð nema mjög ófullkomin grein fyrir því, hvað
hinar ýmsu girðingategundir kosta uppsettar, vegna þess að verðlag
þeirra er mjög breytilegt. Fer verðlag m. a. eftir því, frá hvaða landi
efnið er keypt. Þá hefur verð girðingarefnis breytzt frá ári til árs. Enn
Þ'emur má benda á, að enda þótt girðingarefni sé ódýrt, getur lágt
verð stundum stafað af lélegu efni, svo að ekki er alltaf einhlítt að líta
a verð eingöngu.
1. Verð á staurum.
a- Tréstaurar 2"X4", 6 feta langir, kosta hjá S. í. S. kr. 4.10 eða
nni kr. 0,70 fetið. Annars fer verðið eftir efni og sverleika stauranna.