Búfræðingurinn - 01.01.1951, Page 64
62
BÚFRÆÐINGURINN
hennar landi. ÞaS fer því ekki hjá því, að við íslendingar verðum að
læra þar um marga hluti, sem við höfum lítinn áhuga á og koma að
litlu haldi hér á landi. Mér er það t. d. minnisstætt, þegar ég stundaði
nám við búnaðarháskólann danska, þá fengum við þar mjög litla
kennslu í ýmsum mikilvægum greinum á okkar mælikvarða. Sá pró-
fessor, sem átti að kenna um sauðfjárrækt, hélt fyrir okkur einn fyrir-
lestur um það efni, og flestir íslenzkir búfræðingar hefðu getað kennt
honum stórmikið í þeirri fræðigrein. I nýrækt, framræslu, áveitum og
landmælingum var kennslan ekki eins yfirgripsmikil og hún er í ís-
lenzkum hændaskólum. Aftur á móti lærðum við mjög ítarlega um
margs konar skorkvikindi, jurtasjúkdóma og jurtir, sem fyrirfinnst
ekki hér á landi. Og í öllum greinum var kennslan að sjálfsögðu sniðin
eftir dönskum staðháttum. Þessa umsögn ber þó ekki að skoða á þann
veg, að ég telji búnaðarháskólann danska ómerkilega stofnun. Sá skóli
nýtur mikils trausts bæði í Danmörku og utan. En einmitt þetta, sem ég
hef bent hér á, var ein af aðalástæðunum fyrir því, að það var talið
réttmætt að hefja hér íramhaldsnám í búfræði þrátt fyrir fátækt og
ýmsar örðugar aðstæður. Yið, sem höfum á sínum tíma sótt æðri bún-
aðarmenntun okkar til annarra landa, minnumst þess vafalaust flestir,
að áður en við gátum farið að leiðbeina bændum í búskap og um fram-
kvæmdir, þá urðum við að læra af þeim ýmis einföld, en mikilvæg at-
riði, sem voru í samræmi við íslenzka staðhætti og við höfðum ekkert
lært um ytra.
Þegar kennsla er innlend og framkvæmd af þeim mönnum, sem fær-
astir eru taldir í hverri grein, þá á að vera hægt að vinna upp á móti
ýmsum hlutum, sem okkur óneitanlega vantar í dag til þess að geta
boðið fram sambærilega búnaðarháskólamenntun við erlenda. En slíkt
stendur til bóta. Ég vænti þess, að við á næstu tveimur árum fáum ým-
islegt, sem okkur vantar nú, og ég tel það mjög líklegt, að áður en lang-
ir tímar líða, þá verði unnt að gera þetta nám lengra og fullkomnara
en það er nú.
Með tilliti til þessa, sem nú hefur verið sagt, hefur það verið ákveðið
í samráði við og með leyfi landbúnaðarráðherra, að nemendur fram-
haldsdeildarinnar hér fái titilinn búfræðikandídat, um leið og þeir út-
skrifast.
Þeir 8 nemendur, sem hófu nám haustið 1947 í framhaldsdeild, hafa
nú allir lokið námi og staðizt þau próf, sem framhaldsnámið leggur