Búfræðingurinn - 01.01.1951, Blaðsíða 67
BÚFRÆÐINGURINN
65
vill með þeim bezlu í berjamónum. Og það er trúa mín, að þið munið
yíirleitt íá mikið af berjum í berjaföturnar ykkar, reynast dugandi
menn.
Það er alltaf mikils virði fyrir hvern skóla að fá góða nemendur. En
sérstaklega er þetta mikilvægt, þegar skólar eru að hefja göngu sína.
Það er dómur minn um ykkur, að þið hafið verið góðir nemendur. Að
vísu hefur próf ykkar orðið misjafnt, eins og ávallt er í skólum. En það
eitt að taka hátt próf er ekki nóg til þess að geta talizt góður nemandu
Þið hafið allir sýnt alvöru og áhuga í námsstarfi ykkar, og það met ég
mikils. Mér er það ljóst, að það tiltölulega góða traust, sem fram-
haldsdeildin hefur hlotið meðal búfræðinga, bænda og hinna ráðandi
nianna um fjármál landsins, er að verulegu leyti ykkur að þakka. Ef
fyrstu nemendur framhaldsdeildarinnar hefðu verið áhugalitlir ungl-
mgar, sem hugsuðu um annað meira en námið, þá hefði það auðveld-
lega getað haft þær afleiðingar, að þessi tilraun hefði fallið niður og
enginn viljað leggja henni lið. En þið hafið átt sterkan þátt í því að
skapa þá hefð hér við skólann, að hér er litið á framhaldsnámið sem
mikilvægan þátt í starfi skólans og mikilvægan lið í leiðbeiningastörf-
um meðal bænda. Þegar í fyrra vetur var farið að kalla ykkur háskóla-
menn, þá hefur það ef til vill verið gert meira í gamni en alvöru. En
mér hefur fundizt, að því lengra sem leið á starfstíma deildarinnar, þvx
meiri alvöruþunga fengi þetta orð.
Og það er okkur ljóst, sem hér störfum, að framtíð þessa búfræði-
nanis byggist að mjög verulegu leyti á því, hvernig okkur tekst að velja
nemendur í framhaldsdeildina. Það er að vísu æskilegt, að við fáum
menn með góða undirbúningsmenntun og mikla námshæfileika. En
íyrst og fremst þurfuni við þó á að halda mönnum, sem vita, hvað þeir
vilja, og eru staðráðnir í því að helga landbúnaðinum krafta sína alla.
Þið, sem eruð að útskrifast í dag, hafið skapað gott fordæmi. Ég þakka
ykkur fyrir það í nafni skólans hér og sjálfs mín vegna. Sumir ykkar
hafa dvalizt hér nær því samfellt í 4 vetur og 2 sumur. Samstarfið er
því orðið langt, og það hefur verið á þann veg, að ég sakna ykkar
héðan.
Námi ykkar er lokið við þennan skóla, prófskírteinin ykkar segja
að verulegu leyti til um það, hvernig ykkur hefur gengið að tileinka
ykkur þau fræði, sem hér liafa verið á borð borin. Oft hefur námið
verið þungt og þið þurft mikið á ykkur að leggja. Nú hefst starfstíma-
la'jFHÆÐINCUHINN 5