Búfræðingurinn - 01.01.1951, Side 101
BÚFRÆÐINGURINN
99
komu. Ef um vægasta stig sólbruna er að ræða, hreistrar yfirhúðin
eftir nokkra daga frá því, að sjúkdómsins verður vart, og kýrin nær sér
að fullu. Nái brunaáhrifin dýpra í húðlögin, jafnvel í undirhúðina,
kemur oft drep í húðina, liún þornar, skrælnar og flagnar af, oft í
stórurn flygsum. Eftir verða stór sór, sem gróa illa. Þegar húðin er
gróin, verða stundum eftir ör og hárlausir blettir.
Lœkning og meðferð: Ef kýr sólbrennur, á að hafa hana inni í svölu
og dimmu húsi í nokkra daga. Til þess að draga úr húðbólgunni og
sviðanum er gott að bera blývatn á bólgublettina. Verði sár eftir, þeg-
ar húðin flagnar, skal nota við þau sáralyf, t. d. sulfathiazol-duft, ich-
tyol-áburð, penicillin-sulfathiazol-smyrsl o. fl.
Þegar kýrin er látin út aftur, er gott og stundum nauðsynlegt að
klæða hana með yfirbreiðslu.
Það er góður siður, en því miður of sjaldgæfur að klæða kýrnar,
þegar þær eru látnar út fyrst á vorin. í kalsaveðri er kúnum mikið skjól
að slíkum yfirbrciðslum.
8. Blóðsótt (dysenterie).
Sjúkdóms þessa verður fyrst vart hér á landi um 1940, eða á fyrstu
stríðsárunum. Var talið, að kýr liefðu sýkzt af útlendu fóðurmjöli
(mais). Síðan hefur öðru hverju borið á sjúkdómi þessurn og á stund-
um allmikið. Sjúkdómurinn er bráðsmitandi, og má heita, að hve ein-
asti gripur sýkist í fjósi, þar sem blóðsótt nær fótfestu. Smitið getur
borizt á milli fjósa með lifandi gripum, fóðurmjölspokum, mjólkur-
brúsum og jafnvel með fólki, á klæðum þess eða skóm. Gripir sýkjast
einnig hver af öðrum í beitilandi. — Ekki hefur enn tekizt að finna
sýkilinn, en ýmislegt virðist benda til þess, að sýkillinn muni vera af
Salmonellaflokknum.
Sjúkdómseinkenni: Aðalsjúkdómseinkennið er megn niðurgangur,
stundum blóði blandinn. Líkamshitinn hækkar oft lítið eitt. Þessu fylg-
lr lystarleysi. Kýr, sem fá blóðsótt, geldast ákaflega, og verða nýbærur
harðast úti.
Lækning og varúðarráðstafanir: Fyrst er sýki þessi kom fyrir í kúm
hér, var reynt að gefa þeim ópíum með krít og eikarberki. Virtust lyf
þessi koma að nokkru haldi. Miklu betur hefur reynzt að gefa sulfa-
guanidin. Ef gefið er sulfaguanidin-duft, skal gefa 10 gr í einu 4 sinn-
Um á dag eða, ef töflur eru notaðar, 20 ^öflur í einu 4 sinnum á dag.