Búfræðingurinn - 01.01.1951, Blaðsíða 115
BÚFRÆÐINGURINN
na
Þá er, enn sem komið er, lítil hagnýt reynsla til, sem hægt er að
byggja á, og hagfræðilega undirstöðu vantar algerlega.
Til þess að hrinda þessu máli áleiðis, svo að ekki sé staðnæmzt þar,
sem nú er komið, heldur sótt fram, hefur mér dottið í hug, að ríkið
ætti að koma upp kornrækt í stórum stíl við báða búnaðarskóla lands-
tns. T. d. yrði byrjað með nálega 200 dagsláttum á hvorum stað. Þær
korntegundir, sem helzt kæmu til greina, væru bygg, hafrar, rúgur —
°g e. t. v. maís sem grænfóður, og fleira gæti komið til greina. Véla-
kostur þarf að sjálfsögðu að vera af nýjustu og beztu gerð. Þó verður
fyllilega að taka tillit til veðurfars og jarðvegs og annarra aðstæðna
hér á landi.
Það kann að vera, að sumum finnist fullmikið að byrja með 200
dagsláttur, en ég held, að það megi ekki vera minna til þess, að unnt sé
að hafa full not af vélum og verkfærum þeim, sem til þarf, og ennfrem-
ur til þess, að unnt sé að hagnýta vinnuaflið sem bezt.
Það er einkum tvennt, sem ég sé því til gildis, að byrjað sé á korn-
r®kt í stórum stíl við búnaðarskólana. Þar eru fyrir hendi betri og
fjölþættari tæki til jarðvinnslu en víða eru annars staðar. Og þá mundu'
Uemendur skólanna fá einstakt tækifæri til þess að læra og kynnast
kornræktinni af eigin raun. Það mundi auka áhuga og þekkingu þess-
ara ungu manna, og síðar meir gætu þeir, öðrum fremur, orðið braut-
ryðjendur kornræktar á íslandi.
Ég býst við, að engum blandist hugur um það gildi, sem kornrækt
almennt hefði fyrir þjóðarheildina. Árlega eru fluttar inn fóðurvörur
fyrir millj ónir króna. Mætti því vænta þess, að stjórnarvöldin vildu
^Sgja þessu málMið, ef það gæti orðið til þess að styrkja og efla land-
búnaðinn og auka framleiðslu hans. Ég álít, að kornrækt geti orðið
verulegur þáttur í þjóðarbúskap okkar, a. m. k. sums staðar á landinu.
Landrými er næstum ótakmarkað. Og með því að hagnýta reynslu og
þekkingu annarra þjóða í þessum efnum og með þrotlausri leit eftir
nýjum afhrigðum mætti smátt og smátt stytta vaxtartíma korntegund-
anna og fá fram harðgerðari stofn. Það mundi tryggja öruggari af-
komu þessa atvinnuvegar.
aÚFHÆniNCUHINN
S