Búfræðingurinn - 01.01.1951, Page 118
116
BÚFRÆÐINGURINN
Páll Pálsson yngri, Þúfum N.-ísafjarSarsýslu, skrifar á þessa leið:
„Undanfarin 5 ár hef ég gefið kúnum 2 matskeiðar á dag af salti sam-
an við fóðurbætinn. Mér hefur gefizt þetta mjög vel, þær hafa verið
heilsugóðar, lystugar og aldrei fengið doða. Fyrst notaði ég matarsalt,
en síðar venjulegt fóðursalt. Ég hef byrjað að gefa kvígunum salt á
öðru ári, lítinn skammt í fyrstu. Margir bændur hér í sveit hafa tekið
þetta eftir mér og hefur gefizt vel.“
Hörður Valdimarsson, Holtastöðum Húnavatnss., skrifar: „Ég ætla
að reyna að lýsa fyrir lesendum Búfræðingsins, hvernig einangrun er
fyrir komið í fjósi, sem verið er að byggja hér á Holtastöðum. Mér
virðist, að einangrunaraðferðin sé eitt mesta vandamálið við byggingu
fjósanna.
Undir fjósinu er haughús og safnþró. Þar eru veggir 25 cm þykkir.
Til þess að gera steypuna þéttari og koma í veg fyrir rakaleiðslu um
haughúsveggina í fjósloftið var látið þéttiefni í steypuna efst í haug-
húsveggina og einnig komið þar fyrir 6 cm þykkum korkplötum utan
við steypujárnsendana í gólfinu. Einnig var látið þéttiefni í steypuna,
sem bindur saman gólf og veggi. Gólfsteypan er 10 cm þykk. Allt er ein-
angrað nema flór með 20 cm þykku torflagi. Efst er svo 10 cm þykk
steypa, og er svo einnig um básana. Með þessu er fjósið vel einangrað
frá haughúsinu. Veggir fjóssins eru þannig: Útveggir 20 cm þykkir,
torfstopp 20 cm og múrhúðun á vírneti innst. Gluggar eru úr járni og
tvöfaldir. Er ytri glugginn steyptur í útvegginn utarlega, en hinum
innri er komið fyrir á trégrind í stoppinu. A milli glugganna er 25
cm rúm.
Risþak er á fjósinu, en skammbitar taka það að nokkru af að innan,
því að asbestplötur eru negldar neðan á þá. Yzt er þakjárn, þar næst
tjörupappi, þá 15 cm þykkt reiðingstorf og innst innanhússasbest. Við
byggingu þessa fjóss voru notuð steypumót, sem áður voru óþekkt hér.
Búnaðarsamband Húnavatnssýslu keypti þessi mót frá Ameríku, og
voru þau notuð hér í sýslunni í sumar við byggingu á íbúðarhúsum,
fjósum og hlöðum og reyndust prýðilega. Þetta er flekar úr 2,5 cm
þykkum skipakrossvið, sem er festur á járngrind. Lengd hvers fleka er
2,40 m, en breiddir eru tvær, 60 og 30 cm. Þegar flekarnir eru settir
upp, eru þeir kræktir og splittaðir saman. Það er fljótlegt að setja
þessa fleka saman. Saumur sparast alveg og rýrnun á mótavið. Steyp-