Búfræðingurinn - 01.01.1951, Page 127
125
búfræðingtjrinn
stj óri um gróðurtilraunir. Um kvöldið sýndi Óskar Gíslason mynd frá
Snorrahátíð í Reykholti. Um kvöldið voru gestir orðnir um 100. Því
miður var ekki hægt að láta nema fáum af þeim í té rúm, en margir
Ógu í svefnpokum úti í hlöðu eða
sváfu í tjöldum, er þeir höfðu
nieðferðis.
Kl. 91/2 þ ann 26. júní hófst
iundur að nýju í nemendafélaginu
Hvanneyringi. Þá fluttu þeir erindi
Þórir Baldvinsson forstjóri um
öyggingar í sveitum og Pétur
Gunnarsson tilraunastj. um fóðr-
Unartilraunir á Hvanneyri. Fyrir
°g um hádegið fjölgaði gestum
urt. Um kl. 2 munu hafa verið hér
a staðnum um 150 Hvanneyring-
ar og auk þess nokkrir Borgfirð-
lngar, sem komu hingað sérstak-
^ga til þess að vera við:
dfhjúpu/i myndaslyttu af Hirti
S'iorrasyni skólastjóra. Sú athöfn
hófst kl. rúmlega 2. Auk þeirra
gesta, sem voru hér á staðnum,
^öfðum við þá ánægju að taka á
m°ti sonum Iljartar, þeim Torfa,
^norra og Ásgeiri. í fylgd með
þeim voru kona Torfa og frú
^nna Ásmundsdóttir, ekkja Ás-
geirs Torfasonar efnafræðings.
Frú Ragnheiður Torfadóttir,
eKkja Hjartar, gat því miður ekki komið sökum vanheilsu. Þótti öllum
'nikið á vanta, að þessi merka kona, sem um margra ára skeið tók mik-
ilvægan þátt í stjórn Hvanneyrar, skyldi ekki geta verið viðstödd, þeg-
ar Bændaskólinn, Hvanneyringar og fjölmargir Borgfirðingar minnt-
nst manns hennar á veröugan og virðulegan hátt.
Jörundur Brynjólfsson alþingismaður afhjúpaði myndastyttu Hjart-
ar? en auk hans talaði Sigurjón Kristjánsson frá Krumshólum. Skóla-
Skólastjóri setur minningarathöfn um
Hjört Snorrason.