Búfræðingurinn - 01.01.1951, Page 146
144
BÚFRÆÐINGURINN
3. Hversu lengi væri 6 manna flokkur að vinna verk, sem 5 menn og 5 ungling-
ar vinna á 27 dögum, ef gert er ráð fyrir, að unglingurinn vinni þriðjungi.
minna en fullorðinn á jafnlöngum tíma?
4. 19 menn grafa skurð á 27 dögum með því að vinna 8 tíma á dag. Hve lengí
ætti þá 12 manna flokkur að vera að grafa annan eins skurð með því að
lengja vinnutímann um eina stund á dag?
5. 2i/2 : 3,75 + 5% • UA7 24y5 • 6/n : 3%
51/ : 23/ -~ 12% : 8,5 ' 2,25 • 4% : 3%
6. Maður leggur 1950 kr. inn í banka. Eftir hve langan tíma verður upphæðin.
orðin 1963 kr., ef rentan er 4% p. a.?
7. A keypti sér armbandsúr, sem hann seldi fljótlega aftur með 30% gróða fyr-
ir 520 kr. Hefði hann grætt eða tapað á að selja það fyrir 320 kr. og hve
mörg %?
8. Mér voru boðnar 18000 kr. í bílinn minn, en ég vildi ekki selja hann þá, þv£
að ég hefði þá tapað 40% af kaupverði hans. Seinna seldi ég bílinn og tap-
að þá aðeins 12% af kaupverðinu. Hvað fékk ég fyrir bílinn?
9. A, B og C eiga kartöflugarð í félagi. A á 25% stærri blett en B, og C á 33%%-
stærri blett en B. Þeir setja samtals niður 860 kg og fá áttfalda uppskeru-
Hve mörg kg af uppskerunni koma í hvers manns hlut, ef henni er skipt eftir
stærð blettanna, sem þeir eiga?
10. Víxill er seldur 23. maí og fellur í gjalddaga 29. ág. s. á. Forvextir eru 714%
um árið. Fyrir víxilinn eru greiddar 4410 kr. Finn víxilupphæðina.
Stœrðfrœði í eldri deild:
1. V 332,3329.
2. Finn flatarmál ferhyrnings, þegar önnur homalínan er 20 m og hæðarlín-
urnar á hana 10 og 12 m.
3. Finn grunnlínu þríhyrnings, sem er 360 m2, þegar hæðin er 18 m.
4. Hringur er 0,7 m að þvermáli. a) Hve langar eru hliðar fernings, sem er jafn-
stór hringnum að flatarmáli? b) Hver er munur á ummáli þeirra (hrings og:
femings) ?
5. Tarfur er tjóðraður. Stærstur hringur, sem hann getur gengið, er 44 m að um-
máli. Ilve langt er tjóðurbandið?
6. Kúla er 21 cm að þvermáli. Hvert er rúmmál hennar?
7. Hve mörg kg vegur koparþráðrúlla, sé koparþráðurinn 1260 m langur og <*■
mm að þvermáli (Eþ. er 8,9)?
8. Garður er rétthyrndur, ferhyrndur. Hornalínur garðsins eru 14,14 m. Horniu-
sem myndast á milli hornalínanna og sem að endum garðsins snúa, eru 45°-
Hvert er flatarmál garðsins?
9. Maður á kr. 8550,00. Nokkurn hluta lánar hann út gegn 41/2% vöxtum, en af-
ganginn fyrir 5%. Hvor hluti lánsins fyrir sig gefur jafnmikið í rentu sem>
hinn hlutinn. Hve stór er hvor hluti lánsins?