Frjáls verslun - 01.11.2002, Síða 81
Hörður Sigurgestsson
stjórnarformaður Flugleiða
Umskiptin í rekstri Flugleiða
að, sem skipti mestu máli fyrir Flugleiðir á árinu 2002, var
alger umsnúningur í rekstri félagsins. Segja má að um
helmingur af umskiptunum byggist á jákvæðum ytri þáttum en
hinn hlutinn á jákvæðum aðgerðum í rekstrinum. Ekki er vafi á að
úrslitaáhrif hefur haft að starfsfólk fyrirtækisins er samhentur, lang-
þjálfaður, velmenntaður og harðsnúinn hópur sem hefur lotið mjög
traustri forystu.
Fáar starfsgreinar eru alþjóðlegri en flug og ferðaþjónusta. Meira
en 75% af farþegatekjum Flugleiða verða til erlendis. Þegar horft er til
Vesturlanda eru horfur á efnahagsþróun árið 2003 ekki nema þokka-
legar. Samt sem áður eru Flugleiðamenn glaðbeittir þegar lagt er upp
í byijun ársins 2003. Gert er ráð fyrir hækkandi sól í innlendri hag-
þróun og ákveðið er stefnt að 7% aukningu erlendra ferðamanna til
Islands.
Bestu minningarnar á árinu tengjast tveimur litlum stúlkum,
barnabörnum, Maríu Vigdísi, sem fæddist á árinu í Madrid, og
Áslaugu Kristínu á 4. ári. Tíminn með þeim hefur verið dýrmætur. H3
Jón Scheving Thorsteinsson
framkvæmdastjóri Baugs ID
Úrlausn Arcadia-málsins
Að öðrum málum ólöstuðum, tel ég að skipulagsbreytingarnar um
mitt ár hjá Baugi og úrlausn Arcadia-málsins hafi staðið upp úr sem
og endurfjármögnun Baugs í kjölfarið. Með þessum skipulags-
breytingum var grunnurinn lagður að því skipulagi sem félagið mun
starfa eftir til framtíðar.
Ljóst er að árið verður erfitt um margt. Afar mikilli samkeppni á
markaði Baugs - íslands hefur fylgt lægri framlegð og gerir hún miklar
kröfur til stjórnenda þess félags. Jafnframt er mikil samkeppni vestan-
hafs hjá Bonus Stores við aðrar dollaraverslanir. Verslunarfélög á
Englandi voru ódýr á þessu ári þótt blikur séu á lofti með það á komandi
ári. Mikil áhersla verður lögð á að vinna úr verkefnum sem hófust á
þessu ári.
Mér eru langminnistæðastar þær öru framfarir sem börnin mín tóku
á árinu.B!]