Ármann - 01.04.1959, Blaðsíða 17
ÁVARP FRÁ FÉLAGSSTJÓRNINNI
Að berjast í stafni þótti mikill heiður hjá víkingum, forfeðrum vorum. Þetta hefur
orðið hlutskipti Ármanns, og frá fyrstu tið hefur Ármann verið stafnbúi í íþrótta-
hreyfingu þessa lands og alltaf barizt með drenglyndi og fórnfýsi að áhugamálum
þeirrar hreyfingar.
Þau eru ótalin, ungmennin, sem félagið hefur gefið hollt veganesti, bœði andlega
og líkamlega frá fyrstu tið. Þessu til sönnunnar er hið fjölbreytta og þróttmikla starf,
sem félagið hefur innt af höndum í þágu œskunnar.
Það hafa skipzt á bœði skin og skúrir, eins og verða vill. En margir góðir sigrar liafa
unnizt, bœði íþróttalega og félagslega. Og Ármann hefur lika kunnað að tapa, en að
bíða ósigur hlýtur einnig að fylgjast að með sigrunum. Þess vegna er það, að sá, sem
ekki getur hugsað sér að bíða ósigur, hann á aldrei skilið að sigra.
Hafið þetta hugfast, Armenningar, þá mun vel fara.
Ollum mótherjum sinum á liðnum árum þakkar Ármann fyrir drengilegar keppn-
ú', og það er einlœg ósk félagsms, að iþróttir megi lialda áfram að dafna og blómgast
innan iþróttafélaga þessa lands og heildarsamtaka þeirra.
STJÓRN ÁRMANNS