Ármann - 01.04.1959, Blaðsíða 38
■ ':V > . áffiifö
m.
Skidaskáli Ármanns i Jósepsdal
Fiallahringunnn er fagur hvert sem
litið er, en hann endar á Snæfellsjökli,
yfir Reykjavík, í norðvestur átt.
Bláfjöllin eru tvímælalaust eitthvert
fegursta og fjölbreyttasta skíðaland,
sem kostur er á hér á landi og ósk okk-
ar Ármenninga er sú, að sem flestir
skíðamenn, ungir jafnt sem gamlir,
sæki hreysti og dug í Jósepsdal og Blá-
fjöllin.
Ógjörningur er að þakka öllu þessu
fólki svo sem það á skilið, en það hef-
ur meðtekið laun sín í gleðinni við
starfið og góðum árangri.
Það var engin tilviljun að Ármenn-
ingar tóku sér bólfestu í Jósepsdal.
Dalurinn býður skíðafólkinu upp á ó-
teljandi möguleika, og sólbjartar snævi
þaktar hlíðarnar beggja vegna dalsins,
laða menn til sín með töframætti.
Skammt er í Bláfjöllin, en þangað
geta skíðamenn valið um nokkrar leið-
ir. Ein er sú, að fara upp Ólafsskarð,
sem gengur austur úr dalnum, og það-
an suður með fjöllunum að austan,
suður að Fjallinu eina og upp Heiðina
Há. Þetta er að vísu nokkuð löng leið,
en afar fjölbreytileg og fögur, enda var
hún mikið farin hér áður fyrr, eða áð-
ur en farið var að stunda æfingar á
skíðum jafnmikið og nú er gert. önn-
ur lcið er sú, að fara beint upp úr daln-
um, upp Bláfjallagilið, og er sú leið al-
gengust, enda stytzt og hægust.
Þegar upp i Bláfjöllin kemur og ef
hreinviðri er, blasir við manni undra-
fögur útsýn, svo fögur að vart má með
orðum lýsa. 1 austri rísa Vestmanna-
eyjar úr sjó, en norðar gnæfa Eyja-
fjallajökull, Tindfjallajökull og Hekla.
Ingibjörg Árnadóttir
Stefán Kristjánsson
38
ÁRMANN