Nýi tíminn - 01.09.1932, Blaðsíða 1

Nýi tíminn - 01.09.1932, Blaðsíða 1
UTGEFANDI: [BÆNDANEFND KOMMUNISTAFLOKKS ÍSLANDS. 1 ÁRG. REYKJAVIK, SEPT. 1932. 8. TBL. Opiö tll Gísla Guðmun Heiðraði ritstjóri! 20. ágÚ8t minnist þér á Nýja tímann í blaði yðar, þótt ekki getið þér nafns hans. Það var mér óvænt gleði. Ég hafði gert ráð fyrir þvi, að litla bænda- blaðið, sem kommúnistar hafa átt þátt í að út væri gefið, mynd- uð þér reyna að þegja í hel eins lengi og þér gætuð. En þér hafið séð, að ekki þýddi að þegja. Litla mánaðarblaðið var komið upp um allar sveitir og lesið þar með mikilli eftirtekt og rætt af miklum áhuga, af því að það tók á þeirn málum, sem þyngst liggja á hjarta fátæku sveita- bændanna. En um leið og ég þakka yður fyrir, að þér hafið vakið athygli á blaðinu meðal þeirra, sem vera mætti að ekki hefðu veitt því eftirtekt, þá vil ég leyfa mér að ræða við yður eitt at- riði í kveðjuávarpi yðar til blaðsins. Þér komist þannig að orði: »Sjálfum kommúnistaforingjun- um í Rússlandi dettur áreiðan- lega ekki i hug, að slik bylting, sem þar hefir átt eér stað, muni nokkurntima verða t. d. á Norð- urlöndum, og það af þeirri ein- földu ástæðu, að margt af því, sem Rússar eru nú að koma í bréf dssonar vitstjópa. kring, er þegar búið að fram- kvæma í mörgum öðrum þjóðfé- lögum, þar sem lýðræðið er gam- alt og þróunin hefir orðið á ann- an hátt<. Að visu þykist ég vita, að hér talið þér á móti betri vitund yðar, — þveröfugt við þekkingu yðar á þvi, sém er að gerast í Rússlandi, og þveröfugt við skiln- ing yðar á þjóðfélagsmálum yf- irleitt. Þó ætla ég að ræða við yður um þetta efni í áheyrn sameiginlegra lesenda þesaara tveggja blaða. Hvað hefir gerst i Rússlandi síðustu árin? — Þér segið, að margt af því, sem Rússar eru nú að koma í kring, sé þegar búið að framkvæma í mörgum öðrum þjóðfélögum. Hér eigið þér sjálfsagt við hina stórfeldu aukningu i véla- notkun og framleiðslu, sem orðið hefir með meiri hraða í Rússlandi nú síðu8tu árin en dæmi eru áður til i veraldarsögunní. Rétt er nú það. í öðrum löndum hefir tæknin komist á hærra stig en í RÚ8slandi enn sem komið er, og hafa Bandaríkjamenn verið taldir lengst komnir í þeim efnum. Þér viljið auðsjáanlega koma bændum til að líta þannig á, að í Rússlandi sé nú að gerast hið sama og var að gerast í Ameriku, meðan verið var að nema þar land og gera hana fullkomnasta véliðjuver heimsins. Þessu hafa ýmsir aðrir haldið fram, sumir af vanþekkingu og fávisku, en aðrir til að villa mönnum sýn um tilgang og eðli kommúnist- iskrar byltingar, og þannig mun vera með yður. Iðnaðarþróunin í Ameriku hefir haft í för með sér þá stór- kostlegustu neyð, sem sögur fara af. Þar skifta atvinnuleysingjar tugum miljóna, og dagiega deyja hundruð manna úr hungri eða afleiðingum þess, jafnhliða því að þar eru fullkomnustu tæki til að framleiða mat og aðrar nauðsynjar. Og þótt mikið af þeim tækjum sé látið standa ónotað, — verksmiðjurnar lok- aðar, akrarnir ósánir, o. s. frv., — þá verður einnig að gripa til þess að eyðileggja þær nauð- synjar, sem fram eru leiddar, til að grynna ofurlítið á þeim fádæmabyrðum, sem fyrir liggja. Þér vitið, að þetta ástand er bein afleiðing þeirrar »uppbygg- ingar«, sem þarna hefir átt sér stað; Driffjöðrin í uppfynding- um og framkvæmdum var að »minka framleiðslukostnað* var- anna. Og leiðin til þess að minka framleiðslukoatnaðinn var fyrst og fremst sú að fá til framleiðslunnar vinnuafl, sem minna þurfti að borga en mann- aflið. Því var það, að þegar bú- ið var að rækta landið, koma

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/699

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.