17. júní - 01.07.1925, Síða 1
Dr. Sigfús Blöndal.
ÆR raddir hafa oft látið til sín
heyra, að þeir íslendingar, sem
settust að í útlöndum, væru týndir
sauðir fyrir þjóð-
ina. En saga lands-
ins sannar einmitt
hið gagnstæða.
t>ví í þeim flokki
hafa jafnan verið
nokkrir þeirra
manna, er mest
gagn hafa unnið
landinu og drjúg-
astan hafa lagt
skerfinn til að auka
hróður þess út um
heiminn. Þarf ekki
annað en að nefna
JónEiríksson.Finn
Magnússon, Jón
Sigurðsson, Kon-
ráð Gíslason, Guð-
brand Vigfússon,
Eirík Magnússon
og marga fleiri.
Mörgaf þjóðskáld-
unr vorum hafa og ort sín bestu kvæði
meðan þeir dvöldu í útlöndum. Þar
glæddist ættjarðarást þeirra best, og
þaðan er sú alda runnin, sem hæst
lyfti landinu til frelsis og franifara á
umliðinni öld.
Sem einn í flokki þessara manna á
20. öldinni má nú telja dr. Sigfús
Blöndal. Því þó hann sje enn á
besta aldursskeiði
(ekki nema rúm-
lega fimtugur), svo
að allmikils megi
enn vænta frá hans
hendi, þá hefur
hann þegar unnið
svo mikið og gott
starf í þágu ís-
lands, að hann
má vel telja meðal
máttarviða íslen-
skrar menningar
út á við, þar sem
hann hefur smíðað
og fengið útlend-
ingum í hendur
lykilinn að mörgu
því í bókmentum
og þjóðlífi íslend-
inga, sem áður
var flestum þeirra
hulinn leyndar-
dómur. — Dr. Sigfús Blöndal er fæddur
á Hjallalandi í Vatnsdal 2. okt. 1874,
og er því þjóðhátíðarbain. Er hann af
góðu bergi brotinn, af hinni þjóðkunnu
Blöndalsætt í báðar ættir. Faðirhansvar
Björn L. Blöndal, sonur skáldsins Lúð-
Dr. Sigfús Blöndal.