17. júní - 01.07.1925, Qupperneq 8
24
17. JUNI
Af ferð um Suðurjótland.
Okkur íslendingunum, sem erum hjer
í Askov og nágrenninu, var það
óblandin ánægja.að Dansk-islandsk Sam-
fund ætlaði að efna til Suðurjótlands-
ferðar nú í sumar.
Það, sem gerði för þessa svo girni-
lega, var fyrst og fremst að fá tækifæri
til þess að sjá Suðurjótland í allri
sumardýrðinni. Við hugðum einnig gott
til að kynnast fólkinu þar, sem aldrei
hefur látið buga þjóðernistilfinningu
sína, en með þrautseigju og kjarki
hefur stefntað markinu sem náðist 1920.
Förin var ákveðin og 6. júní var lagt
af stað. Við Askovbúar áttum að hitta
samferðafólkið í Kolding. Þangað vorum
við komin í tæka tíð og biðum nú með
eftirvæntingu eftir lestinni frá Kaup-
mannahöfn. Loksins kom hún. Við
litum rannsakandi augum eftir vagna-
röðinni. Var þetta ekki íslenski þjóð-
Áge M. Benedictsen og frú.
búningurinn? Jú, bravól Þá voru ís-
lendingarnir komnir. Það var hressandi
að sjá íslenska þjóðbúninginn, — það
var eins eg kveðja að heiman.
Nú varð þröng mikil á stöðinni, því
við þurftum öll að heilsast með handa-
bandi að íslenskum sið, og fagnað-
arlætin gengu „fjöllunum" hærra.
Koldinghus.
Nú voru allir komnir, sem ætluðu
að taka þátt í förinni, 29 manns, 25
íslendingar og 4 Danir. Foringi fararinn-
ar, herra A. M. Benedictsen, bað sjer
brátt hljóðs og skýrði fyrir oss hvernig
dvölinni skyldi hagað í Kolding. Til-
lögum hans var tekið með fögnuði og
nú hjelt allur hópurinn af stað upp að
Koldinghus.
Það stendur á hæðardragi einu í
útjaðri bæjarins. Þaðan er fagurt útsýni
yfir Koldingfjörðinn, bæinn og landið
umhverfis.
Nú er lítið eftir af ytri fegurð þess-
arar gömlu hallar, en hún á sína sögu.
Arið 1284 ljet Abel hertogi byggja
höll eða kastala til varnar gegn árásum
Dana á Suðurjótland. Síðar meir, eftir
að hún komst í danskar hendur, varð
hún landvarnarkastali og konungshöll
um langan aldur.
Oft hefur verið bygt við höllina og hún