17. júní - 01.11.1925, Side 1
Þórður Guðjohnsen, fyrv. verslunarstjóri á Húsavík.
MEÐAL þeirra íslendinga, sem hafa
búsett sig hjer í Höfn, er Þórður
Guðjohnsen þeirra elstur. Hann hefir
nú búið hjer í Dan-
mörku í 23 ár, og
hafa íslendingar á-
valt mætt gestrisni á
heimili þeirra hjóna.
Þórður Guð-
j o h n s e n er fædd-
ur í Reykjavík 14.
sept. 1844. For-
eldrar hans voru
Pjetur organleikari
Guðjohnsen, Guð-
jónssonar, Sigurðs-
sonar á Sjávarborg
í Skagafirði, og
Guðrún Knudsen,
dóttir LárusarKnud-
sens kaupmanns í
Reykjavik. Þórður
ólst upp í Reykjavík
fram yfir fermingar-
aldur; vildi faðir
hans láta hann
ganga skólaveginn, en sjálfur var Þórður
lítt bókhneigður i þá daga, þótt nægar
gáfur hefði hann til náms; hneygðist
hugur hans fremur til sjómensku, en
eigi líkaði föður hans það vel, heldur
kom honum fyrir í búð hjá Sveinbirni
Jakobsen, kaupmanni í Reykjavík; var
hann þar í þrjú sumur, en í skóla á
vetrum. Jakobsen varð gjaldþrota 1857,
og var Þórði þá
komiðtil skólanáms
til Jóns Jónssonar
prests á Mosfelli,
en hann skorti allan
áhuga á því námi
og kom því lítt
lærðariafturtilföður
sins, en þegar hann
fór þaðan. Húskenn-
ara hafði faðir hans
næsta vetur, og
uam Þórður þar
nokkuð í dönsku,
ensku og þýsku,
en frakknesku nam
hann hjá Boudvin
presti í Landakoti.
Voru tungumál og
reikningur þær
námsgreinar, sem
best áttu við gáfna-
lag Þórðar.
Arið 1858 hafði Sveinbjörn Jakobsen
kynst skotskum kaupmanni, Hender-
son að nafni, og komið honum til að
hefja verslun i Reykjavík, varð Þórður
búðarsveinn þar og var þar til 1860.
Þá hafði Henderson keypt verslun á