17. júní - 01.06.1926, Side 1
JON SIGURÐSSON, FORSETI
VJER íslendingar minnumst Jóns
Sigurðssonar fæðingardag hans,
17. júní. Vjer minnumst hans þennan
dag af þakklátum
huga fyrir starf
hans í þarfir við-
reisnar og sjálfstæð-
is lands vors. Fáir
hafa unnið af eins
miklum eldmóð,
kappi og óeigingirni
að þeim málum,
eins og hann. Hann
gerði það ekki af
því, að hann ætlaði
sjer tignarstöðu,
væri hennar kostur;
hann hafnaði stöðu,
er honum bauðst
hún, fyrir þá sök
eina, að þá hefði
hann orðið að hætta
forystu sinni í
stjórnmálum. Hann
vann sleitulaust heil-
an mannsaldur að því, að koma í
lag fjármálum þjóðarinnar, og vekja
menn til dug og dáða, og fá eru þau
mál, sem hann var ekki eithvað rið-
inn við eða frumkvöll að. Því er oss
íslendingum svo ljúft að minnast
hans fæðingardag hans. Vjer lítum
þá yfir liðinn veg,
og gætum þess,
hvort hafi nú verið
vikið úr sporum
hans. Vjer trúum því
sjálfir, íslendingar,
að vjer hvergi höf-
um vikið í þeim
málum, sem hann
taldi sjálfur nauð-
synlegt og sjálfsagt
að halda fast við og
víkja hvergi frá.
Honum mundi þá að
sjálfsögðu, mætti
hann líta upp úr
gröf sinni, finnast
mikið um ýmsar
þær framkvæmdir
sem orðið hafa á
landi voru, síðan
hann lagðist til
hinstu hvíldar, enda er ísland síðan
orðið sjálfstætt ríki, og enginn hefir
betur en hann, lagt grundvöllinn að
þeim málunx. En margt mundi hon-