Morgunn - 01.06.1977, Side 20
18
MORGUNN
andlegum hæfileikum búnir, því að þeir fást þá jafnan við
önnur störf. En hver, sem keppir að því að afla sér æðri þekk-
ingar og víðtækari, eða sækist eftir listum, er margfalt sælli
í öðrum heimi. Þess ber og að gæta, að menn geta eins séð
að sér eftir að þeir eru komnir yfir í hinn æðra heim, og tekið
að lifa skynsamlegu lífi, ef þeir vilja.
Gáfu- og listamenn eru að jafnaði frábærlega sælir i öðrum
heimi, en ennþá sælli held ég að þeir menn séu, sem hafa
haft unað og gleði af því að hjálpa og frfeða og bæta úr böli
annarra manna. Því þótt í öðrum heimi sé enginn efnaskort-
ur, þorsti, kuldi og ekkert hungur, þá eru margir hryggir og
þarfnast huggunar, og margir fávísir fræðslu. Því, vegna
þess, að menn hér í álfu vita yfirleitt svo lítið um lífið „hin-
um megin grafar“, þá þarfnast þeir mjög uppfræðslu og leið-
beininga um svo margt, þegar þangað er komið. Og þeir, sem
fróðari eru, geta frætt þá og uppörvað, þar eins og hér. En
vér verðum að hafa það hugfast, að þótt vér notum orðin:
„þar“ og „hér“, til þess að tákna með hið sýnilega og ósýni-
lega tilverustig, þá er hinn ósýnilegi heimur engu síður hér
á þessum stað, sem vér nú stöndum á. Hann umlykur oss á
alla vegu, og vér megum ekki láta oss detta í hug, að hann
sé aðeins einhvers staðar úti i fjarlægum álfum alheimsins.
Það mætti og spyrja, hvort hinir látnu ástvinir vorir geti
séð og heyrt til vor. Þeir geta að vísu séð oss og vitað hvem-
ig oss líður, en þeir heyra ekki orðin, sem vér tölum, og vita
heldur ekki greinilega run margt af því, sem vér gerum hér
í heimi. Vér skulum nú sjá, hvað þeir geta vitað og hvað ekki.
Þeir lifa í hinum svonefnda andlega líkama. Vér höfum og
sams konar líkama, og hann er nákvæm eftirmynd jarðneska
likamans. Þær stundirnar, sem vér vökum, er meðvitund vor
í jarðneska líkamanum. En eins og áður er sagt, skynjar hann
ekki nema þá hluti, er tilheyra efnisheiminum, og andlegi
likaminn aðeins þá hluti, sem eru í hinum andlega heimi.
Það, sem hinn látni sér af oss, er því andlegi líkaminn, og
hann á engan veginn erfitt með að greina hann. Þegar vér
sofnum, vöknum vér í hinum andlega heimi. Það er að segja: