Morgunn - 01.01.1978, Blaðsíða 37
ALDAHVORF
35
nefndum „villimönnum". Því næst komum við að dýrunum,
síðan að jurtunum og loks að steinaríkinu. Allt frá steinaríki
til nútímamannsins stríðsvædda kemur í ljós þegar á lieildina
er litið siaukin hneigð til aukinnar hæfni í þjónustu ban-
væna lögmálsins eða drápslögmálsins, sem er sama og brot
gegn kærleikslögmálinu, hámark hugræns myrkurs eða rang-
snúin lífsbreytni. Sjáum við ekki hvernig eins dauði er ann-
ars brauð? —■ Sjáum við ekki að afleiðing þessarar þróunar
er það tilveru- eða lífsskynjunarsvæði, þar sem það er lífver-
unum blátt áfram lífsskiljrrði að lifa hver á annarrar líköm-
um, holdi þeirra og blóði, að ekki sé minnzt á allt það hlóð
sem úthellt er til að komast yfir eignir, aðstöðu og réttindi
náungans. Getur lífið sýnt meiri ófullkomleika, meira myrk-
nr, meira skemmdastarf? — Hugsum okkur flóttamannabúð-
irnar með milljónum heimilislausra eða föðurlandslausra
manna, með lífskraftinn lamaðan af miskunnarlausri kúgun,
umgirtir gaddavír, á svo naumum matarskammti að rétt nægir
hl jiess að ramba á barmi hungurdauða eða sjálfsmorðs. Er
þetta ekki ógnvekjandi staðfesting á yfirráðum myrkursins?
'— Eru ekki rústir glæsilegra menningarsetra, raðir hermanna-
grafreita svo kílómetrum skiptir, brenndir skógar, eyðilagðir
abrar o. s. frv. enn frekari undirstrikun þess, að jarðneski
maðurinn er staddur í ríki myrkranna?
XXVII.
Það sem lífveran glatar í ríki myrkranna.
Hvað er það þá, sem lífveran hefur glatað í þessu volduga
myrkraríki? — Það er hvorki meira né minna en einmitt
skynjun sambands núverandi jarðlífs við heildina eða eilífð-
lna, sem veran tilheyrir frá kosmiskum sjónarhóli. Hún þjá-
!st af kosmisku „meðvitundarleysi“. Áhrif „neyzlunnar af
skilningstrénu“ eru fullkomnuð.