Morgunn - 01.12.1980, Blaðsíða 25
BENEDIKT GUÐMUNDSSON, AKUREYRI:
„HERRA, EN HVAÐ VERÐUR
UM ÞENNAN?“
„Ef ég vil að hann lifi þangað til ég kem, hvað tekur ]>að til
þin? Fylg þú mér.“ (Sjá: Jóh. 21, 21.—22. v.).
„Páskasólin, hinn upprisni Drottinn Jesús Kristur, boðar
nýja tíma, nýtt land, handan við gröf og dauða.“ Þetta stend-
ur i páskaræðu fyrrv. biskups Sigurgeirs Sigurðssonar (Nýj-
ar hugv.). Og samt spyrjum við enn í dag eins og Símon
Pétur postuli og lærisveinn Jesú: „Herra! en hvað verður
um þennan?“ Dauðinn dó, en lífið lifir. Allt líf frelsarans
Jesú Krists sannar það, að líf eftir þetta jarðneska líf er til
og að framhaldslifið er sía, þar til að eilifa lífinu er náð. -
Hvernig getum við öðlast eilíft líf? Svarið er örugglega þetta:
Gjörðu Guðs vilja, því Jesús segir: „Því að hver sem gjörir
vilja Guðs, sá er bróðir minn, systir og móðir.“ (Mark. 3,
35. v.). „Þvo mig hreinan liknarlind, lauga mig af hverri
synd.“ I stórum dráttum, þá er þetta vegurinn til þess að
öðlast eilíft líf í riki Guðs, sem sagt: Við erum komin í gegn-
um siuna, allir þeir, sem ná þessu marki, hafa nú engan vilja
eða löngun til þess að hverfa aftur til baka og lifa enn á ný
í holdsins lystisemdum, nei, þeir hafa verið stöðugir i anda,
horft á lífsins fjöll og sigrað:
„Þótt jarðnesk gæfa glatist; öll,
ég glaður horfi á Lífsins fjöll."
(E. H. Kv.).