Morgunn - 01.12.1980, Blaðsíða 30
GINA CERNIMARA:
HINN STÓRKOSTLEGI MÖGULEIKI
Menn fæðast; þeir þjást; þeir deyja. í sögu sem Anatole
France sagði, dró vitringur saman alla sögu mannkynsins í
þessum sex orðum.
En það er til önnur saga, eldri og miklu táknrænni, sem
sögð hefur verið um þjáningar manna. Það er þjóðsagan um
unga prinsinn Siddhartha, sem síðar varð kunnur sem Buddha,
hinn upplýsti. Faðir Siddhartha var Hindúi, auðugur fursti,
sem hafði tekið þá ákvörðun, að sonur hans skyldi vera vernd-
aður frá því að vita um illskuna í heiminum. Prinsinn ólst því
upp til æskuþroska í þægilegri einangrun og var honum valin
sem ektamaki fögur prinsessa, án þess að hann hefði nokkru
sirmi stigið fæti út fyrir hallarveggina. Hinn ungi Siddhartha
var ljómandi hamingjusamur i hjónabandinu, ekki síst eftir
að þeim hafði fæðst fyrsta barnið, en liann var einnig for-
vitinn um lifið í heiminum utan hallarveggjanna. Og eitt sinn
tókst honum að komast framhjá hallarvörðunum og fara
í fyrstu ferð sina gegn um iðandi borgina.
Á þessari örlagaríku rannsóknarferð um borgarstrætin var
eiukum þrennt af því sem hann sá, er hafði djúp áhrif á
hann: gamall maður, veikur maður og látinn maður. Hinum
unga, viðkvæma prinsi var mjög brugðið og spurði hann
þjóninn, sem hann hafði tekið með sér, hvemig stæði á svo
hörmulegri eymd. Þegar honum var sagt, að þetta þrennt
væri engan veginn óalgengt, slíkt væri hlutskipti allra manna,
þá snart þetta prinsinn svo djúpt, að hann gat ekki hugsað
sér að hverfa aftur til lífs í auði og unaði. Hann afsalaði sér
öllum veraldlegum eignum sínum og setti sér það markmið að