Morgunn


Morgunn - 01.12.1980, Blaðsíða 46

Morgunn - 01.12.1980, Blaðsíða 46
GINA CERNIMARA: SVAR VIÐ LÍFSGÁTUNNI Þegar Edgar Cayce hafði gegnt mannúðarhlutverki sinu með lækningum í tvo áratugi, þá var löngu ljóst orðið að skyggni hans var áreiðanleg, eins og hafði sýnt sig í þús- undum tilfella. Það er ekki vanþörf á að minna á þessa sann- reynd, þegar vikið verður að nýrri hlið, nýrri þróun, á þess- um furðulega lífsferli. Upphaflega hafði skyggni hans verið beint inn á við að hinum duldu líkamshlutum. Það liðu mörg ár áður en nokkr- um hugkvæmdist, að einnig myndi hægt að beita þessu afli út á við að alheiminum sjálfum, að sambandi manns og al- heims, að gátum mannlegra örlaga. Það gerðist með þessum hætti. Maður var nefndur Arthur Lammers, velefnaður prentari í Dayton, Ohio. Kunningi hans einn beindi athygli hans að Cayce, og vakti nægilega forvitni hans til þess að hann gerði sér sérstaka ferð til Selma, Alabama, þar sem Cayce bjó um þær mundir. Langaði Lammers til að sjá hann að starfi. Ekki var samt neinu heilsuleysi til að dreifa hjá Lammers; hins vegar var hann sannfærður um að hann væri fullfær um að ganga úr skugga um það, hvort skyggni Cayces væri raun- veruleg, ef hann ætti þess kost að fylgjast með dálestrum hans í nokkra daga. Lammers var vel upplýstur maður, greindur og áhugasamur um andleg mál. Það hvarflaði að honum, að hugur sem greint gæti það, sem hulið var mannlegum sjón- um, gæti ef til vill einnig varpað nokkru ljósi á vandamál sem merkilegri væru en starfsemi lifrarinnar eða flóknir veg-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.